Loðnubrestur í ár veldur því að á fyrstu sex mánuðum ársins dregur úr útflutningsverðmætum sjávarafurða. Á hinn bóginn er góður gangur í útflutningi ferskra afurða og lýsis. Ljósm. mm

Lítilsháttar samdráttur í fiskútflutningi á fyrri árshelmingi

Útflutningsverðmæti sjávarafurða nam tæplega 26 milljörðum króna í júní samkvæmt fyrstu bráðabirgðatölum um vöruviðskipti sem Hagstofan birti í vikunni. Það er um 4,5% samdráttur í krónum talið miðað við júní í fyrra. Í Radarnum, mælaborði sjávarútvegsins, kemur fram að lítil breyting hafi verið á gengi krónunnar á tímabilinu og er samdrátturinn mældur í erlendri mynt því svipaður, eða 4,8%. Í umræddum samdrætti munar mest um fiskimjöl. Útflutningsverðmæti þess nam 1,1 milljarði króna nú í júní samanborið við 3,2 milljarða í júní í fyrra, sem jafngildir um 66% samdrætti á milli ára að teknu tilliti til gengisbreytinga. Eins var um 27% samdráttur í útflutningsverðmæti saltaðra og þurrkaðra afurða á milli ára, en verðmæti þeirra nam rúmlega 2,2 milljörðum króna nú í júní. Þá var einnig samdráttur í útflutningsverðmæti „annarra sjávarafurða“ (-23%), rækju (-33%) og heilfrystum fiski (-19%).

Lítilsháttar samdráttur í fiskútflutningi á fyrri árshelmingi - Skessuhorn