Sandra Bradley. Ljósm. Instagram

Sú þýska var langt í frá fyrst til að lyfta Húsafellshellunni

Í Skessuhorni í gær og fleiri miðlum voru fréttir þess efnis að þýsk kraftakona hafi verið fyrst kvenna til að lyfta Fullsterkum á Djúpalónssandi. Fylgdi sögunni á Instagram síðu konunnar að hún hafi áður verið fyrst kvenna til að lyfta Húsafellshellunni margfrægu. Hið síðara er rangt og beðist velvirðingar á því að þessi skrif hinnar þýsku Söndru Bradley voru birt gagnrýnislaust. Ritstjórn Skessuhorns var m.a. bent á frétt sem eitt sinn birtist í blaði þar sem sagði frá því að grunnskólastúlka ein á Kleppjárnsreykjum hafi verið með Húsafellshelluna í fanginu - og virtist ekki taka það nærri sér. Stúlka sú heitir Kristín Gísladóttir og er frá Mið Fossum í Andakíl, fædd 1973 og starfar við leikskóla í Borgarnesi. Vafalaust hafa svo fleiri konur „glingrað“ við Helluna með góðum árangri.

Ritstjórn var auk þess bent á að tvær sögupersónur í Íslandsklukku Halldórs Kiljan Laxness, ung stelpa og gömul vinnukona, eru sagðar taka „molann“ í fang sér hvenær sem þeim sýndist. Boðskapur þessarar leiðréttingar er sá að það getur verið varhugavert fyrir ritstjórnir sem og aðra að taka hrátt upp það sem fólk skrifar og hendir í loftið á samfélagsmiðlum.

Sú þýska var langt í frá fyrst til að lyfta Húsafellshellunni - Skessuhorn