Fréttir

true

Viljayfirlýsing undirrituð um nýja heilsugæslustöð á Akranesi

Í morgun skrifaði bæjarstjóri Akraneskaupstaðar, fjármálaráðherra og heilbrigðisráðherra undir viljayfirlýsingu þess efnis að ráðist verði í byggingu nýrrar heilsugæslustöðvar á Akranesi. Henni verður fundinn staður í nýju húsi sem byggt verður við Mánabraut 20 en á þeirri lóð er nú fyrrum skrifstofubygging Sementsverksmiðjunnar. Það hús verður rifið og byggt á lóðinni hús á nokkrum hæðum…Lesa meira

true

Óskað hefur verið eftir gjaldþrotaskiptum Skagans 3X

Starfsfólki Skagans 3X var tilkynnt á fundi í morgun að stjórn fyrirtækisins hefur ákveðið að óska eftir gjaldþrotaskiptum. Hjá fyrirtækinu hafa að undanförnu verið hátt í 130 starfsmenn. Í bréfi sem Jeff Davis forstjóri ritar starfsfólki kemur fram að undanfarna mánuði hefur verið lögð mikil vinna í fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækisins og meðal annars verið leitað…Lesa meira

true

Húsfyllir á tónleikunum Írska hjartað

Mikil og góð stemning var á tónleikunum Írska hjartað sem fóru fram í Bíóhöllinni á Akranesi í gærkvöldi. Þar tók tónlistarfólk úr bæjarfélaginu sig saman og flutti írska tónlist. Meðal annars átti Þjóðlagasveitin skemmtilega endurkomu. Húsfyllir var á samkomuna og „geggjuð stemning,“ eins og gestir komust að orði. Meðfylgjandi ljósmynd tók Fjóla ÁsgeirsdóttirLesa meira

true

Umhverfisspjall í Grundarfirði

Það var margt um manninn á mánudaginn þegar boðið var í umhverfisspjall í Sögumiðstöðinni í Grundarfirði. Umræður fóru fram um það sem íbúum liggur á hjarta þegar kemur að umhverfismálum, snyrtimennsku, framkvæmdum, gæðum í bæjarumhverfinu og fleira. Bæjarstjóri og starfsfólk Grundarfjarðarbæjar voru með kynningar á ýmsum verkefnum sem eru framundan og tóku þau vel í…Lesa meira

true

Nokkuð um símanotkun undir stýri

Í liðinni viku voru höfð afskipti af rúmlega 60 ökumönnum vegna of hraðs aksturs í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi og sá sem hraðast ók mældist á 146 km hraða. Allnokkrir ökumenn reyndust ekki vera með ökuréttindi í lagi við afskipti lögreglu og einnig var nokkuð um símanotkun undir stýri. Árekstur varð milli bíls og krossara…Lesa meira

true

Skotthúfan var haldin í Stykkishólmi í blíðskapar veðri

Þjóðbúningahátíðin Skotthúfan fór fram í Stykkishólmi laugardaginn 29. júní í blíðskaparveðri. Hátíðin hefur fest sig í sessi í Hólminum og setur hún hátíðlegan brag á annars fallegan bæ þegar áhugafólk af öllu landinu heimsækir bæjarfélagið í sínu fínasta pússi. Byggðasafn Snæfellinga- og Hnappdæla hefur veg og vanda að hátíðinni og hefur fóstrað hana frá fyrstu…Lesa meira

true

Gangstéttarviðhald í góðviðrinu

Veðrið var ljúft síðasta föstudag þegar verktakar í Grundarfirði voru að steypa nýja gangstétt meðfram Nesvegi. Það var kominn tími á endurnýjun en þessi gönguleið er mikið notuð enda liggur hún meðfram hafnarsvæðinu. Þarna fara þúsundir ferðamanna um þegar skemmtiferðaskipin leggjast að bryggju og svo að sjálfsögðu heimamenn sem og aðrir gestir.Lesa meira

true

Vegna rannsóknarhagsmuna var hrúts krafist

Nýlega úrskurðaði matvælaráðuneytið að bónda á Norðurlandi vestra væri skylt að afhenda Matvælastofnun ákveðinn hrút til að kanna útbreiðslu á riðuveiki. Fyrir lá að hann hafði haft samgang við riðuveika kind og gæti því hugsanlega verið smitberi. Eftir að riðutilfelli greindist í Miðfjarðarhólfi vorið 2023 fór fram smitrakning sem leiddi þetta í ljós. Eina leiðin…Lesa meira

true

Kordó með sumartónleika í Hallgrímskirkju í Saurbæ

Strengjakvartettinn KORDÓ kemur í heimsókn og spilar á sumartónleikaröð í Hallgrímskirkju í Saurbæ sunnudaginn 7. júlí klukkan 16. Nemendur í strengjaleik eru sérstaklega boðnir velkomnir án endurgjalds á þessa tónleika. Á tónleikunum leikur Kordo kvartettinn hið þekkta verk Mozarts „Eine kleine Nachtmusik,“ en auk þess leika þau kafla úr strengjakvartettum eftir Haydn, Mendelssohn, Grieg, Ravel…Lesa meira

true

Frábært andrúmsloft í Borgarnesi um liðna helgi – myndasyrpa

Veðurguðirnir ásamt íbúum og gestum Borgarness sáu til þess að andrúmsloftið á hátíðarhöldum Hinseginhátíðar og Brákarhátíðar var til fyrirmyndar. Hápunktur helgarinnar var gleðigangan sem fór úr Brákarey og endaði við Hjálmaklett. Þar var haldin hátíðardagskrá sem heppnaðist með eindæmum vel. Bærinn iðaði af lífi og voru jafnt Borgnesingar og gestir þeirra hæstánægðir með hátíðina. Meðfylgjandi…Lesa meira