Fréttir

true

Unnið við vegabætur

Sumarið er tími viðgerða á þjóðvegum landsins. Vinnuflokkar færa sig á milli staða og taka hvern veghlutann af öðrum og leggja yfir nýtt slitlag. Meðfylgjandi mynd var tekin á Akrafjallsvegi norðan við fjallið í gær. Þá var meðal annars heimreiðin að Hvanneyri lagfærð sama dag svo eitthvað sé nefnt. Þegar slík vinna stendur yfir er…Lesa meira

true

Heyskapur fer á fullt næstu daga

Í dag og næstu þrjá daga gera veðurfræðingar ráð fyrir þurru veðri um vestanvert landið. Síðdegis á sunnudag kemur þó lægð upp að vestanverðu landinu og gæti þá aftur farið að rigna. Bændur í landshlutanum eru nú að vígbúast með sláttuvélar tengdar aftan, og jafnvel einnig framan, við dráttarvélar sínar. Spretta er orðin þokkaleg á…Lesa meira

true

Ökumaður vinnuvélar svaf vært

Í liðinni viku voru höfð afskipti af 44 ökumönnum sem eru grunaðir um of hraðan akstur í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi og sá sem hraðast ók mældist á 141 km hraða á klst. Einn ökumaður sem lögregla hafði afskipti af vegna of hraðs aksturs er einnig grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Lögregla hafði afskipti…Lesa meira

true

Kvika syngur í Hallgrímskirkju á sunnudaginn

Sumartónleikar í Hallgrímskirkju í Saurbæ halda áfram nú um helgina. Sunnudaginn 30. júní kl. 16.00 er það Kammerhópurinn Kvika sem flytur þekkt kórlög, íslenskar ljóðaperlur við lög og útsetningar, m.a. eftir Jón Ásgeirsson, Báru Grímsdóttur, Hjálmar H. Ragnarsson, Hreiðar Inga Þorsteinsson og Arnþrúði Lilju Þorbjörnsdóttur. Kammerhópinn Kviku skipa söngvarar úr héraði sem hafa getið sér…Lesa meira

true

Breyttu sandauðn í langstærsta bú landsins

Nýlega kom út bókin Saga Gunnarsholts á Rangárvöllum eftir Svein Runólfsson. Bókin er tæpar 500 blaðsíður með yfir 1000 ljósmyndum. Í bókinni er m.a. rakin saga kornræktar og fjallað um landgræðsluflugið svo fátt eitt sé nefnt. Á bókarkápu segir að árin undir lok nítjándu aldar hafi verið afar erfið um land allt. Á Rangárvöllum geysuðu…Lesa meira

true

Vel heppnað Norðurálsmót í smá bleytu – Myndasyrpa

Norðurálsmótið í knattspyrnu fór fram um síðustu helgi í 39. skiptið og stóð frá fimmtudegi til sunnudags. Þátttakan á mótinu í ár var aðeins meiri en í fyrra og voru keppendur alls 1.830 í 7. og 8. flokki drengja og stúlkna. Veðrið var með ágætum flesta dagana en þó rigndi nokkuð mikið seinni part laugardags…Lesa meira

true

Síðasti löggilti trébátasmiður Íslands

Rætt við Einar Jóhann Lárusson trébátasmið í Ögri Bóndasonurinn Einar Jóhann Lárusson er ættaður frá Ögri í Helgafellssveit. Hann er síðasti trébátasmiðurinn sem útskrifast hefur sem löggiltur tréskipasmiður hér á landi en það nám hefur nú verið lagt niður. Einar hefur einnig lokið sveinsprófi í húsasmíði, stundað grásleppuveiðar við Breiðafjörð, skorið og meðhöndlað klömbru við…Lesa meira

true

Goðsagnir gefa af sér

Bræðurnir og knattspyrnu goðsagnir Skallagríms, þeir Gunnar og Garðar Jónssynir, mættu í gær á æfingasvæði Skallagríms í Borgarnesi til að gefa yngri flokkum Skallagríms fjölda fótbolta að gjöf. Gunnar og Garðar spiluðu lengi vel með Skallagrími ásamt því að koma að þjálfun hjá félaginu. Að sögn Jóns Theodórs Jónssonar, framkvæmdastjóra knattspyrnudeildar Skallagríms, er þetta gríðarlega…Lesa meira

true

Sameina fjögur stjórnendafélög á fundi í kvöld

Í kvöld klukkan 19 fer fram stofnfundur fjögurra stjórnendafélaga á suðvesturhorni landsins. Þetta eru Stjórnendafélag Vesturlands, Stjórnendafélag Suðurnesja, Stjórnendafélag Suðurlands og Jaðar, félag stjórnenda á Akranesi. Stofnfundurinn fer fram að Hlíðarsmára 8 í Kópavogi. „Allir félagsmenn sameiningarfélaganna eiga rétt til þátttöku á fundinum. Boðið verður upp á léttar veitingar. Boðið verður upp á rútuferðir frá…Lesa meira

true

Ingibjörg Þóranna tekin við sem oddviti Dalabyggðar

Á fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar 11. júní síðastliðinn voru gerðar breytingar innan sveitarstjórnar. Eyjólfur Ingvi Bjarnason vék þá sem oddviti sveitarfélagsins en í hans stað var Ingibjörg Þóranna Steinudóttir kjörin til eins árs. Eyjólfur Ingvi hafði gegnt stöðu oddvita í sveitarstjórn frá árinu 2018 en Ingibjörg hefur verið varaoddviti frá kosningum 2020. Ingibjörg býr ásamt fjölskyldu…Lesa meira