Fréttir

true

Önnur prentun af bókinni um Fornahvamm

„Við vorum að koma með aðra prentun af bókinni um Fornahvamm sem kom út í fyrra og seldist upp. Núna er bókin að koma út á kilju,“ segir María Björg Gunnarsdóttir sem skráði og gaf út bókina um Fornahvamm í Norðurárdal. „Viðbrögðin við bókinni hafa verið ótrúlega góð enda staðurinn að hverfa úr hugum landsmanna…Lesa meira

true

Gáfu skólanum hátalara

Í tilefni af því að Guðrún Sigurjónsdóttir og Eiður Ólason á Glitstöðum eiga ekki barn lengur í Varmalandsdeild Grunnskóla Borgarfjarðar ákváðu þau á dögunum að færa skólanum stóran og öflugan hátalara að gjöf. Fram kemur á vefsíðu skólans að Guðrún og Eiður hafa átt í rúmlega tuttugu ár nemanda við skólann en ekki lengur. Þessi…Lesa meira

true

„Nú reynir á að halda áfram að taka réttu skrefin“

Jón Þór Hauksson þjálfari ÍA tekinn tali um tímabilið í sumar Skagamenn léku í sumar í Bestu deild karla í knattspyrnu eftir að hafa komist upp úr Lengjudeildinni á síðasta ári eftir eins árs dvöl. ÍA lauk leik í sumar í 5. sæti sem er besti árangur liðins í efstu deild síðan árið 2007 þegar…Lesa meira

true

Íbúafundir um Gott að eldast voru haldnir á Vesturlandi

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi voru í liðinni viku með íbúafundi á Vesturlandi um verkefnið Gott að eldast, vitundarvakning Félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins um félagslega einangrun. Um var að ræða kynningu á þeirri þjónustu sem veitt er í sveitarfélaginu og stendur eldra fólki til boða. Það gengur út á að samþætta félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk…Lesa meira

true

Mæla blóðsykur og selja happdrættismiða í Borgarnesi

Alþjóðadagur sykursjúkra er á morgun, 14. nóvember. Af því tilefni býður Lionsklúbburinn Agla í Borgarnesi fólki að mæla í því blóðsykurinn í dag og næstu tvo daga einnig. „Það er heilmikið fjör á Hyrnutorgi hjá okkur Lionskonum í Öglu en við bjóðum ókeypis blóðsykurmælingu til að greina áhættu sykursýki. Markmið blóðsykursmælinga er að greina hugsanlega…Lesa meira

true

Skilaboðin eru einföld – við gerum það sem við segjum

Rætt við Ingibjörgu Davíðsdóttur oddvita Miðflokksins í NV kjördæmi Skessuhorn hefur á síðustu vikum birt viðtöl við oddvita þeirra flokka sem bjóða fram í Norðvesturkjördæmi. Alls eru tíu listar í kjöri. Næst í röðinni er Ingibjörg Davíðsdóttir oddviti Miðflokksins. Fyrst er hún spurð um bakgrunn og uppvöxt, skólagöngu og fjölskyldu. Sveitastelpa og mikið á heimavist…Lesa meira

true

Högni Bæringsson gerður að heiðursborgara í Stykkishólmi

Högni Bæringsson var gerður að heiðursborgara Stykkishólms við hátíðlega athöfn sl. laugardag. Tilkynnt var um valið á afmælistónleikum kórs Stykkishólmskirkju, að viðstöddu fjölmenni. Jakob Björgvin S. Jakobsson, bæjarstjóri ávarpaði salinn og stiklaði á stóru á langri og merkilegri ævi Högna, en óhætt er að segja að hann hafi sett svip sinn á samfélagið í Hólminum.…Lesa meira

true

Nokkuð mikið um hraðakstur í umdæminu

Í liðinni viku voru höfð afskipti af um 60 ökumönnum vegna of hraðs aksturs í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Sá sem hraðast ók mældist á 141 km/klst þar sem hámarkshraði er 90 km. Þrír ökumenn eru grunaðir um ölvun við akstur og einn til viðbótar grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Eitt fíkniefnamál kom upp…Lesa meira

true

Kaffihús opnað í Stúkuhúsinu í byrjun desember

Á dögunum var undirritaður samningur milli Byggðasafnsins í Görðum og Díönu Bergsdóttur um rekstur á kaffihúsi í Stúkuhúsinu sem staðsett er í Görðum. Stefnt er að því að opna kaffihúsið sem nefnist Stúkuhúsið Kaffi í byrjun desember næstkomandi. Að sögn Díönu Bergsdóttur eiganda verður opið virka daga á milli 10 og 18 og um helgar…Lesa meira

true

Ragnar & Ásgeir fá tvo nýja bíla í flotann

Flutningafyrirtækið Ragnar & Ásgeir ehf í Grundarfirði hefur fjárfest í tveimur nýjum Volvo flutningabílum í flotann hjá sér. Föstudaginn 8. nóvember mætti flokkur frá Volvo í Svíþjóð og frá Velti sem er Volvo atvinnutækjasvið Brimborgar. Bílarnir eru hinir glæsilegustu og af nýjustu gerð Volvo FH16 með 780 hestafla mótorum. Bílarnir fóru strax í notkun enda…Lesa meira