Fréttir

true

Dótarí opnað að Skólabraut 14

Klukkan 13 í dag var verslunin Dótarí opnuð í bláa húsinu á Skólabraut 14 á Akranesi. Verslun með sama nafni var rekin á Akranesi fyrir nokkrum árum en lokað í árslok 2022. Nú hafa Axel Freyr Gíslason og Drífa Dröfn Siggerðardóttir unnusta hans opnað verslunina að nýju. Dótarí selur leikföng fyrir alla aldurshópa barna, föndurdót…Lesa meira

true

Gul viðvörun í fyrramálið og til hádegis

Það verður suðvestan 13-20 m/s í kvöld og víða rigning á landinu en kólnar vestantil með éljum. Í fyrramálið er gul viðvörun fyrir vestanvert landið, gengur í norðvestan 15-23 m/s með éljum, en snjókomu um landið norðanvert. Viðvörun fellur úr gildi á hádegi. Úrkomulítið sunnan heiða síðdegis og dregur úr vindi vestanlands. Hiti nálægt frostmarki.…Lesa meira

true

Fyrri aðalfundur Knattspyrnufélags ÍA haldinn

Í gærkvöldi fór fram á Jaðarsbökkum fyrri aðalfundur KFÍA veturinn 2024-2025. Vel var mætt á fundinn og andinn góður en þar fóru aðalþjálfarar meistaraflokka ásamt yfirþjálfara yngri flokka yfir nýafstaðið tímabil. Auk þess var ný stjórn Knattspyrnufélagsins kjörin og fráfarandi stjórnarmönnum þakkað fyrir vel unnin störf. Fram kemur á FB síðu Knattspyrnufélags ÍA að Eggert…Lesa meira

true

Varað við erfiðum akstursskilyrðum á morgun

Vegagerðin bendir á að lægð mun ganga yfir landið á morgun og verður víða hvass vindur og blint í snjókomu og skafrenningi með erfiðum akstursskilyrðum. Á suðvestanverðu landinu verður veður slæmt í fyrramálið og fram að hádegi, þá einkum á fjallvegum. Á norðvestanverðu landinu í fyrramálið og fram á kvöld, og fer þá að snjóa…Lesa meira

true

Yfirlitssýningar á bestu lambhrútum á Vesturlandi haustið 2024 – Jón Viðar skrifar

Haustið 2023 skrifaði ég yfirlit um sauðfjársýningahaldið á Vesturlandi 2023. Vart var við að hjá einhverjum lesendum Skessuhorns féll þetta í góðan jarðveg þannig að hér geri ég aðra tilraun vegna þess að ekki var síður margt frásagnarvert í haust. Bændur á svæðinu sýna áfram þann menningarlega þrótt að halda uppi slíkum yfirlitssýningum. Þær voru…Lesa meira

true

Segja veiðisögur annað kvöld í Halldórsfjósi

Landbúnaðarsafnið á Hvanneyri hefur fengið til liðs við sig valinkunna sagnamenn sem jafnframt eru miklir veiðimenn og munu þeir segja Veiðisögur í Landbúnaðarsafninu á Hvanneyri annað kvöld, föstudaginn 15. nóvember kl. 18:00. Órjúfanlegur hluti laxveiða er að sagðar eru sögur af veiðunum, stóra fiskinum sem slapp, hrakförum (oftast annarra) og ýmsum öðrum uppákomum. Margar þessara…Lesa meira

true

Rennibrautin í sundlauginni á Hlöðum fjarlægð á næstunni

Á fundi fjölskyldu- og frístundanefndar Hvalfjarðarsveitar 7. nóvember sl. var rætt um starfsemi og skipulag í sundlauginni á Hlöðum. Þar kom fram að rennibrautin í sundlauginni er orðin varasöm og fullnægir ekki öryggisstöðlum. Viðgerðir hafa verið reglubundar á hverju ári en eru orðnar kostnaðarsamar og ófullnægjandi. Með hliðsjón af lögum um búnað og öryggi var…Lesa meira

true

Vel sóttur Fræðsludagur Reiðmannsins

Fræðsludagur Reiðmannsins var haldinn laugardaginn 9. nóvember í Hjálmakletti í Borgarnesi, en síðari hluti dagskrár var í reiðhöll LbhÍ á Mið-Fossum. Reiðmaðurinn er nám sem í boði er hjá Endurmenntun LbhÍ og notið hefur mikilla vinsælda. „Í Hjálmaklett mættu um 120 nemendur, þó fleiri hefðu skráð sig, en vegna veðurs var einhverjum nemendum ómögulegt að…Lesa meira

true

Nokkuð mikið um hraðakstur í umdæminu

Í liðinni viku voru höfð afskipti af um 60 ökumönnum vegna of hraðs aksturs í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Sá sem hraðast ók mældist á 141 km/klst þar sem hámarkshraði er 90 km. Þrír ökumenn eru grunaðir um ölvun við akstur og einn til viðbótar grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Eitt fíkniefnamál kom upp…Lesa meira

true

Drög að sóknaráætlun í Samráðsgátt – umsagnarfrestur að renna út

Umsagnarfrestur um drög að sóknaráætlun Vesturlands 2025-2029 rennur út á föstudag, í Samráðsgátt stjórnvalda. Vinna við sóknaráætlun hófst á vormánuðum og fjórir fundir fókushópa voru haldnir. Þá gafst þátttakendum í ungmennaþingi Vesturlands kostur á að koma að vinnunni, auk þes sem haldið var íbúaþing. Sóknaráætlun er grundvöllur vinnu landshlutasamtakanna næstu fimm árin og stefnan hefur…Lesa meira