Fréttir

true

Skallagrímur með öflugan útisigur gegn Sindra

Skallagrímsmenn í Borgarnesi fóru til Hafnar í Hornafirði á föstudaginn og léku gegn heimamönnum í Sindra í þriðju umferð 1. deildar karla í körfubolta. Níu leikmenn frá Skallagrími ásamt fylgdarliði voru mættir en nýi bandaríski leikmaður liðsins, Ishmael Sanders, var kominn með leikheimild og lék því í fyrsta sinn í búningi Skallagríms. Liðin skiptust á…Lesa meira

true

Grænfánaskólar hittast og miðla þekkingu

Grænfáninn verður með landshlutafund fyrir grunnskóla, framhaldsskóla og leikskóla á Vesturlandi í Varmalandi dagana 22.-23. október. Boðað er til slíkra funda annað hvert ár en þeir eru haldnir í fimm landshlutum. Grænfánaverkefnið miðar að því að leiða skóla í faglegri vinnu með sjálfbærni að leiðarljósi. Verkefnið hefur verið nefnt af umhverfisnefnd Sameinuðu þjóðanna sem helsta…Lesa meira

true

Íbúafundur Dalaauðs var haldinn í Búðardal

Vel heppnaður íbúafundur var haldinn í tengslum við verkefnið DalaAuð í Dalabyggð síðastliðinn fimmtudag. DalaAuður er samstarfsverkefni Dalabyggðar, SSV og Byggðastofnunar og er undir hatti brothættra byggða. Árlega eru haldnir íbúafundir í tengslum við verkefnið og gefst íbúum þá kost á að ræða markmið verkefnisins, setja hugmyndir á blað og stilla saman strengi. Fundurinn var…Lesa meira

true

Kjarrá og hestasveinarnir á Víghól

Út er komin bókin Kjarrá og síðustu hestasveinarnir á Víghól. Höfundar hennar eru Arnar Sigurjónsson, Einar Sigurjónsson og Stefán Þórarinsson. Í bókinni er fjallað um veru og störf höfunda í Fjallveiðinni í Kjarrá, sem er efsti hluti Þverár í Borgafirði. Fjallað er um hesta, laxveiði, veiðimenn og náttúruna í heiðalöndum við ána. „Bókin er óður…Lesa meira

true

Blóðsöfnun á Akranesi á morgun

Blóðbankabíllinn verður við Stillholt 16-18 á Akranesi á morgun, þriðjudaginn 22. október, frá kl. 10:00 – 17:00. Þangað eru allir sem mega gefa blóð hvattir til að mæta.Lesa meira

true

Verk að vinna að endurvekja traust kjósenda

Rætt við Ólaf Adolfsson nýkjörinn oddvita Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi „Ég er gríðarlega ánægður með þann ótvíræða stuðning sem ég hlaut hjá flokksfélögum mínum í dag. Framboð mitt hafði skamman aðdraganda, bara örfáa daga, og því kom það mér þægilega á óvart að finna hversu margir voru tilbúnir að trúa mér fyrir þessu ábyrgðar hlutverki. Reyndar…Lesa meira

true

Sjö taka þátt í prófkjöri Pírata í NV kjördæmi

Framboðsfrestur í prófkjöri Pírata rann út klukkan 16 í dag og hófst prófkjörið á sama tíma. Kosningin mun standa til klukkan 16 nk. þriðjudag. Á landsvísu eru alls 69 í framboði en í Norðvesturkjördæmi eru sjö um hituna. Það eru eftirtalin: Agga Ragnheiður Steina Ólafsdóttir, Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir, Sunna Einarsdóttir, Sigríður Elsa Álfhildardóttir, Pétur…Lesa meira

true

Ólafur og Björn Bjarki í efstu sætum hjá Sjálfstæðisflokki

Ólafur Adolfsson lyfsali á Akranesi var sjálfkjörinn í 1. sæti á lista Sjálfstæðisflokks í Norðvesturkjördæmi en kjördæmaþing flokksins stendur nú yfir í Borgarnesi. Teitur Björn Einarsson alþingismaður dró framboð sitt í oddvitasæti listans til baka en bauð sig fram í 2. sæti. Það gerði einnig Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri í Dalabyggð. Kosning fór þannig að…Lesa meira

true

Einungis 3% landsmanna hlynntir orkuframleiðslu einkafyrirtækja

Alþýðusamband Íslands kannaði á dögunum hug almennings til stórra áskorana sem mæta íslensku samfélagi. Spurt var um afstöðu til orku- og auðlindamála, heilbrigðismála, samkeppnismála og hvort svarendum þætti íslenskt samfélag vera almennt á réttri eða rangri leið. Gallup framkvæmdi könnunina dagana 12.-23. september sl. Fram kom í könnuninni að einungis 3% landsmanna eru hlynntir því…Lesa meira

true

Ólafur mun leiða lista Sjálfstæðisflokks

Ólafur Adolfsson lyfsali á Akranesi var rétt í þessu sjálfkjörinn oddviti Sjálfstæðisflokks í Norðvesturkjördæmi fyrir kosningarnar 30. nóvemer nk. Teitur Björn Einarsson alþingismaður dró framboð sitt í oddvitasætið til baka, en er í kjöri í 2. sæti listans sem og Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri í Dalabyggð. Tíðinda er að vænta úr þeirri kosningu innan skamms.…Lesa meira