
Ólafur og Björn Bjarki í efstu sætum hjá Sjálfstæðisflokki
Ólafur Adolfsson lyfsali á Akranesi var sjálfkjörinn í 1. sæti á lista Sjálfstæðisflokks í Norðvesturkjördæmi en kjördæmaþing flokksins stendur nú yfir í Borgarnesi. Teitur Björn Einarsson alþingismaður dró framboð sitt í oddvitasæti listans til baka en bauð sig fram í 2. sæti. Það gerði einnig Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri í Dalabyggð. Kosning fór þannig að Björn Bjarki bar sigur úr býtum með 99 atkvæðum gegn 65 sem féllu Teiti Birni í skaut. Þriðja sæti listans skipar Auður Kjartansdóttir í Ólafsvík. Auður er fjármálastjóri hjá Fiskmarkaði Íslands, bæjarfulltrúi í Snæfellsbæ og stjórnarformaður Brúar lífeyrissjóðs. Dagný Finnbjörnsdóttir í Hnífsdal var sjálfkjörin í fjórða sæti framboðslistans. Uppstillingarnefnd mun raða í 5.-14. sæti framboðslistans.
Þeir Ólafur og Björn Bjarki eru báði að taka þátt í landsmálunum í fyrsta skipti, en hafa verið fulltrúar flokks síns í sveitarstjórnum um árabil; Ólafur á Akranesi og Björn Bjarki í Borgarbyggð.
Listinn í heild sinni er þannig:
Nr. 1 Ólafur Adolfsson lyfsali Akranesi
Nr. 2 Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri Dölum, Borgarnesi
Nr. 3. Auður Kjartansdóttir fjármálastjóri Snæfellsnesi
Nr. 4 Dagný Finnbjörnsdóttir íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Vestfjörðum
Nr. 5 Kristófer Már Maronsson starfsmaður þingflokks Sauðárkróki
Nr. 6 Ragnhildur Eva Jónsdóttir lögfræðingur/sauðfjárbóndi Borgarfirði
Nr. 7 Magnús Magnússon sóknarprestur V-Hún
Nr. 8 Sigurbjörg Ottesen Kúabóndi/stjórnarmaður BÍ Snæfellsnesi
Nr. 9 Ragnheiður Helgadóttir hjúkrunarfræðingur Akranesi
Nr. 10 Þórður Logi Hauksson nemi Vestfirði/Borgarfirði/Skagafirði
Nr. 11 Snæbjört Pálsdóttir sérfræðingur hjá VÍS/laganemi Skagafirði
Nr. 12 Guðmundur Haukur Jakobsson pípulagningameistari A-Hún
Nr. 13 Helgi Rafn Bergþórsson nemi Akranesi
Nr. 14 Sigríður Finsen hagfræðingur Snæfellsnesi.


