
Ólafur mun leiða lista Sjálfstæðisflokks
Ólafur Adolfsson lyfsali á Akranesi var rétt í þessu sjálfkjörinn oddviti Sjálfstæðisflokks í Norðvesturkjördæmi fyrir kosningarnar 30. nóvemer nk. Teitur Björn Einarsson alþingismaður dró framboð sitt í oddvitasætið til baka, en er í kjöri í 2. sæti listans sem og Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri í Dalabyggð. Tíðinda er að vænta úr þeirri kosningu innan skamms.