Fréttir

true

Sýndu Litlu stúlkuna með eldspýturnar

Söngleikjadeild Tónlistarskóla Borgarfjarðar sýndi tvær sýningar af Litlu stúlkunni með eldspýturnar í Borgarneskirkju í síðustu viku. Nítján börn tóku þátt í sýningunni sem leikstýrt var af Theodóru Þorsteinsdóttur og Hönnu Ágústu Olgeirsdóttur en Jónína Erna Arnardóttir lék undir á píanó.Lesa meira

true

Ráðgjöf fyrir aðstandendur og fólk með heilabilun

Upplýsinga- og ráðgjafaþjónusta fyrir fólk með heilabilun og aðstandendur þess hefur verið opnuð hjá Alzheimersamtökunum. Þjónustan er liður í aðgerðaáætlun stjórnvalda í málefnum eldra fólks: Gott að eldast. Markmið aðgerðarinnar er að auðvelda aðgengi að upplýsingum og ráðgjöf um hvað eina sem varðar heilabilun, svo sem varðandi þjónustu og sérhæfðari ráðgjöf. Alzheimersamtökin hafa um árabil…Lesa meira

true

Hagnaður af rekstri Snæfellsbæjar og engar nýjar lántökur

Fjárhagsáætlun A og B hluta stofnana Snæfellsbæjar fyrir næsta ár var samþykkt samhljóða á bæjarstjórnarfundi síðastliðinn fimmtudag. Fram kemur í bókun bæjarstjórnar frá fundinum að verðbólga þessa árs hafi farið töluvert fram úr spám Hagstofunnar og telur bæjarstjórn því þörf á að mæta þeim kostnaði með gjaldskrárhækkunum. Verðbólgan hefur verið í kringum 9% á árinu…Lesa meira

true

Snæfell úr leik í VÍS bikarnum eftir tap gegn Stjörnunni

Stjarnan og Snæfell mættust í 16-liða úrslitum í VÍS bikar kvenna í körfuknattleik á laugardaginn og var leikurinn í Umhyggjuhöllinni í Garðabæ. Það var ekki hátt stigaskorið í fyrsta leikhluta og eftir fimm mínútna leik var staðan 5:2 fyrir Stjörnunni. Snæfell bætti aðeins við einni körfu eftir það og hafði þá ekki skorað í átta…Lesa meira

true

Jólamarkaður var haldinn í Norska húsinu

Í Stykkishólmi var jólalegt um að litast um helgina en jólamarkaður fór fram í Norska húsinu þar sem ýmsir aðilar seldu handverk og kræsingar. Markaðurinn er haldinn árlega í tvígang fyrir jól en gestir og gangandi gátu litið við og keypt eitthvað fallegt ásamt því að skoða jólasýningu Norska hússins. Jólasýningin í ár ber heitið…Lesa meira

true

Körfuboltakempur hittust á ný eftir tæpa hálfa öld

Þann 2. mars árið 1975 fór fram merkilegur körfuboltaleikur þegar ÍA tók á móti KR í bikarkeppninni. Þessi leikur var fyrsti opinberi keppnisleikurinn á milli þessara félaga í körfubolta. Liðin voru ekki alveg á sama stað getulega þegar þau mættust sem sýndi sig í 100 stiga sigri KR, 144-44 sem var met í stigamun á…Lesa meira

true

Kristín vann til bronsverðlauna á EM

Borgfirðingurinn Kristín Þórhallsdóttir keppti um helgina á Evrópumeistaramótinu í klassískum kraftlyftingum sem fram fór í Tartu í Eistlandi og kom heim hlaðin af verðlaunapeningum. Kristín hefur átt góðu gengi að fagna síðastliðin ár á alþjóðamótum. Hún vann til silfurverðlauna á EM 2022 og varð Evrópumeistari árið 2021. Kristín, sem er núverandi Evrópumethafi í hnébeygju, keppti…Lesa meira

true

Gaman þegar vel veiðist

Skipverjar á netabátnum Bárði SH-811 brostu sínu breiðasta þegar þeir komu að landi í Rifi í gær, enda gott veður og rífandi aflabrögð. „Þetta er gaman,“ sagði Sigurður Viktor Hallgrímsson skipsverji í samtali við Skessuhorn. „Það var blíða og nóg af fiski. Við erum með 10 tonn í dag af boltafiski, en aflann fengum við…Lesa meira

true

Jólamorgunstund í Brekkó að þessu sinni haldin í fimleikahúsinu

Jólamorgunstund var haldin í Brekkubæjarskóla á Akranesi síðasta fimmtudag. Þar sem íþróttasalurinn við Vesturgötu er lokaður tímabundið voru morgunstundirnar færðar yfir í fimleikahúsið í vetur þar sem hægt er að koma öllum nemendum skólans fyrir á áhorfendapöllunum en því miður er ekki pláss fyrir foreldra og aðra gesti. Jólamorgunstundin var glæsileg að vanda og mikið…Lesa meira

true

Skógræktarfélagið leggur bæjarfélaginu til jólatré

Skógræktarfélagið í Ólafsvík færði Snæfellsbæ fyrir helgina fyrsta jólatré félagsins. Því hefur verið komið fyrir við dvalarheimilið Jaðar. Vagn Ingólfsson formaður félagsins segir í samtali við Skessuhorn að þetta verði gert að árlegum sið hér eftir hjá félaginu, en þetta fyrsta tré, sem afhent var á föstudaginn, er sitkagreni. Á myndinni eru Kristinn Jónasson bæjarstjóri,…Lesa meira