Fréttir

true

Hlutfallslega hæstur styrkur verður greiddur út á ódýrustu rafbílana

Um áramótin taka beinir styrkir við af skattaívilnunum sem hvatar til orkuskipta í landssamgöngum. Á vegum umhverfisráðuneytisins hefur verið unnið að gerð styrkjakerfis; „sem hraða á orkuskiptum í bílaflotanum í tengslum við flutningshvata til kaupa á hreinorkubílum,“ eins og segir orðrétt í boðskap ráðuneytisins. Það er Orkusjóður sem annast mun þessa umsýslu. Í tilkynningu frá…Lesa meira

true

Varað er við fljúgandi hálku síðdegis og í kvöld

Seinni partinn í dag og í kvöld er gert ráð fyrir flughálku á vegum suðvestan til á landinu, en þá breytist veðrið og gerir skúri á kalda jörð. Vegagerðin varar við færðinni sem þá getur skapast, einkum á svæðinu frá Borgarfirði og suður að Hellisheiði, með hita um og undir frostmarki. “Það gæti orðið flughált…Lesa meira

true

ÍR vann ÍA í úrslitum í Kviss

Úrslitaþátturinn í spurningaþættinum Kviss var sýndur á Stöð 2 í beinni útsendingu í gærkvöldi. Þar mættust lið ÍA og ÍR fyrir framan stútfullan sal af stuðningsfólki sem voru mætt til að hvetja sín lið. Fyrir hönd ÍA kepptu fjölmiðlakonan Sigrún Ósk Kristjánsdóttir og knattspyrnumaðurinn Arnór Smárason og fyrir ÍR sjónvarpskonan Viktoría Hermannsdóttir og rapparinn Emmsjé…Lesa meira

true

Ekki gott kvöld hjá Vesturlandsliðunum í körfunni

Tíunda umferð 1. deildar karla í körfuknattleik fór fram í gærkvöldi þar sem Vesturlandsliðin þrjú þurftu að sætta sig við tap og eru leikmenn liðanna nú komnir í jólafrí. Skagamenn tóku á móti KR á Jaðarsbökkum og úr varð fjörugur og skemmtilegur leikur. ÍA var tíu stigum yfir eftir fyrsta leikhluta, 23:13, en KR-ingar komu…Lesa meira

true

Lions í Grundarfirði hélt árlegan jólamarkað sinn

Lionsklúbbur Grundarfjarðar hélt sinn árlega jólamarkað miðvikudaginn 6. desember síðastliðinn. Að þessu sinni var markaðurinn staðsettur í Gamla netaverkstæðishúsi G.RUN. Í boði var ýmist góðgæti, rúgbrauð, flatkökur, smákökur auk fiskmetis og leiðisgreina. Einnig voru góðir félagar sem hituðu jólaglögg og ristuðu jólamöndlur sem fyllti húsið af góðum ilmi, jólasveinar gengu á lyktina og glöddu börnin…Lesa meira

true

Færa viðskiptavinum sínum síldarfötu í jólagjöf

Jólasíldin sem Fiskmarkaður Snæfellsbæjar færir viðskiptavinum sínum er nýkomin frá Ósnesi ehf á Djúpavogi. Að sögn Andra Steins Benediktssonar framkvæmdastjóra verður þessi jólasíld borin út á næstu dögum til viðskiptavina Fiskmarkaðs Snæfellsbæjar. “Við tókum inn um 600 fötur og fá áhafnir allra viðskiptabáta okkar síldarfötur frá okkur,“ segir Andri Steinn í samtali við Skessuhorn. Hann…Lesa meira

true

Kvika heldur áfram að safnast undir Svartsengi

Veðurstofan gaf í gær út nýtt hættumatskort vegna umbrotanna á Reykjanesi. Þar segir að umbrotahrinunni, sem hófst með landrisi við Svartsengi í október, sé ekki lokið. „Land heldur áfram að rísa á sama hraða og síðustu daga. Á meðan að kvika heldur áfram að safnast fyrir við Svartsengi eru líkur á öðru kvikuhlaupi sem gæti…Lesa meira

true

Unnið að sjálfbærri atvinnuþróun á Vesturlandi

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi hafa fengið ráðgjafarsvið KPMG til að gera greiningu á þeim þáttum sem þarf til að einstök landsvæði á Vesturlandi nái að byggja upp sjálfbæra atvinnustarfsemi m.a. í tengslum við mögulega uppbyggingu grænna iðngarða. „Verkefnið byggir á að greina styrk einstakra svæða á Vesturlandi í atvinnulegu samhengi og hvernig þau geti mætt…Lesa meira

true

Bókaveisla haldin í nítjánda skiptið

Bókaveisla Grunnskóla Snæfellsbæjar var haldin þriðjudaginn 28. nóvember í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík en þetta er í 19. skipti sem nemendur 10. bekkjar skólans standa að kynningu á rithöfundum. Í ár komu rithöfundarnir Auður Jónsdóttir, Auður Ava Ólafsdóttir, Vilborg Davíðsdóttir, Þórarinn Eldjárn og Sævar Helgi Bragason sem lásu upp úr nýútkomnum bókum sínum. Nemendur sömdu…Lesa meira

true

Breyting á barnapakka

Á fundi velferðarnefndar Borgarbyggðar 4. desember sl. kom fram að frá árinu 2018 hafa foreldrar nýfæddra barna með lögheimili í Borgarbyggð fengið afhentan barnapakka. Að verkefninu koma ýmsir samstarfsaðilar frá mismunandi stofnunum. Til stóð að gera breytingu á fyrirkomulagi verkefnisins en af því hefur ekki orðið. Lagt var til á fundinum að förstöðukona Öldunnar, sem…Lesa meira