Ráðhús Borgarbyggðar. Ljósm. gj

Breyting á barnapakka

Á fundi velferðarnefndar Borgarbyggðar 4. desember sl. kom fram að frá árinu 2018 hafa foreldrar nýfæddra barna með lögheimili í Borgarbyggð fengið afhentan barnapakka. Að verkefninu koma ýmsir samstarfsaðilar frá mismunandi stofnunum. Til stóð að gera breytingu á fyrirkomulagi verkefnisins en af því hefur ekki orðið. Lagt var til á fundinum að förstöðukona Öldunnar, sem er vinnustaður fyrir fólk með skerta starfsgetu, taki við verkefninu og breyting verði meðal annars fólgin í því að foreldrar fái inneign að ákveðinni upphæð sem hægt sé að nýta í sveitarfélaginu.

Breyting á barnapakka - Skessuhorn