Fréttir

true

Þjónustusamningur við Bjarkarhlíð

Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs Akraness síðasta þriðjudag var ræddur þjónustusamningur við Bjarkarhlíð, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis. Markmiðið er að veita stuðning, ráðgjöf og fræðslu um eðli og afleiðingar ofbeldis. Bjarkarhlíð býður áfallamiðaða ráðgjöf, stuðning og upplýsingar fyrir þolendur ofbeldis af öllum kynjum, 18 ára og eldri. Samkvæmt samkomulagi sem gert hefur verið á milli…Lesa meira

true

Leikskólarnir á Akranesi nánast fullsetnir

Á fundi skóla og frístundaráðs Akraneskaupstaðar síðasta miðvikudag var lögð fram til kynningar uppfærð skýrsla um framtíðarþörf á leikskólaplássi á Akranesi. Í henni kom fram að í ljósi fjölgunar barna á Akranesi sem innritast utan hefðbundins innritunartíma og náð hafa innritunaraldri í leikskóla (fædd fyrir 30. júní 2022) eru leikskólar kaupstaðarins nánast fullsetnir. Útlit er…Lesa meira

true

Borgfirðingar skoða samstarf við Æfingastöðina

Á fundi velferðarnefndar Borgarbyggðar síðasta mánudag var rætt um að fara í samstarf við Æfingastöðina sem er staðsett í Reykjavík og opna útibú í Borgarbyggð. Í október síðastliðnum var haldinn fundur með framkvæmdastjóra og yfiriðjuþjálfa Æfingastöðvarinnar en skjólstæðingar hennar eru að mestu leyti börn og ungmenni. Þar starfa sjúkra- og iðjuþjálfar með sérþekkingu í hæfingu…Lesa meira

true

Íhuga að svipta séra Friðrik heiðursborgaranafnbót

Á lokuðum fundi bæjarstjórnar Akraness þriðjudaginn 28. nóvember síðastliðinn var tekin umræða um hvort rétt væri að svipta tiltekinn heiðursborgara Akraness þeirri nafnbót. Í fundargerð segir að í tilefni af nýútkominni bók Guðmundar Magnússonar um ævi séra Friðriks Friðrikssonar, stofnanda KFUM & K, hafi komið fram vitnisburður manns um að séra Friðrik hafi leitað á…Lesa meira

true

Sigmar Vilhjálmsson stýrir nýju félagi í meirihlutaeigu Samkaupa

Sigmar Vilhjálmsson, einn af eigendum Minigarðsins, mun færa sig um set um áramótin og taka við sem framkvæmdastjóri Eldum Gott ehf., nýju félagi sem er í meirihlutaeigu Samkaupa til móts við Sigmar. „Hlutverk Eldum Gott verður að þróa og breikka vörulínu Samkaupa með áherslu á tilbúna rétti, rétti sem hægt er að fullelda heima og…Lesa meira

true

Hugmyndin Ævintýragarður á Merkurtúni varð fyrir valinu

Í verkefninu Okkar Akranes um „opin græn svæði“ hlaut hugmyndin Ævintýragarður á Merkurtúni – hönnun, flest atkvæði í kosningu íbúa. Framkvæmdaáætlunin var þannig að Ævintýragarður á Merkurtúni var sett í hönnun. Fengnar voru þrjár frambærilegar hönnunarstofur til að setja fram tillögur og eða frumhönnun. Allar fengu þær sömu punkta sem upplag fyrir verkefnið. Hugmyndin var…Lesa meira

true

Gert ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu Dalabyggðar

Fjárhagsáætlun Dalabyggðar fyrir árin 2024-2027 var lögð fram til síðari umræðu í sveitarstjórn síðastliðinn fimmtudag og samþykkt einróma. Áætluð rekstrarniðurstaða samstæðunnar (A og B hluta) árið 2024 er jákvæð um 85,9 milljónir króna. „Nýjasta útkomuspá fyrir árið 2023 gerir ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu upp á 63 milljónir króna á árinu 2023 þannig að áfram er…Lesa meira

true

Dalabyggð styður við félagsstarf eldri borgara

Fyrr í vikunni var undirritaður samstarfssamningur milli Dalabyggðar og Félags eldri borgara í Dölum og Reykhólahreppi (FEBDOR). „Markmið samningsins er meðal annars að efla starf félags eldri borgara og stuðla að auknu samstarfi milli félagsins og Dalabyggðar,“ segir í frétt á vef Dalabyggðar. „Með samningnum fær félagið starfsstyrk að upphæð 400.000 krónur ásamt óbeinum styrkjum.…Lesa meira

true

Framlengja samning um tjaldsvæði

Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar 30. nóvember síðastliðinn kom fram beiðni um framlengingu samnings um rekstur á tjaldsvæðinu í Kalmansvík. Skipulags- og umhverfisráð hafði lagt til við bæjarráð að framlengja samning um rekstur tjaldsvæðisins við Landamerki ehf. til 30. apríl 2025. Bæjarráð samþykkti á fundinum að gengið yrði til samninga við núverandi rekstraraðila um framlengingu reksturs…Lesa meira

true

Nemendur Grunnskóla Borgarfjarðar voru með upplestur í Brún

Undanfarin ár hefur Félag eldri borgara í Borgarfjarðardölum boðið nemendum úr Grunnskóla Borgarfjarðar að koma og hafa upplestur fyrir gesti. Yfirleitt hefur upplesturinn verið í kringum dag íslenskrar tungu en að þessu sinni var farið miðvikudaginn 29. nóvember og var hann haldinn í félagsheimilinu Brún í Bæjarsveit. Grunnskóli Borgarfjarðar er þriggja deilda grunnskóli sem staðsettur…Lesa meira