Áætlað er að skuldahlutfall sveitarfélagsins fari úr 61% í 120% á næsta ári sökum þess að stefnt er að nýrri lántöku vegna langþráðra framkvæmda við íþróttamannvirki í Búðardal. Ljósm. úr safni/ Steina Matt

Gert ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu Dalabyggðar

Fjárhagsáætlun Dalabyggðar fyrir árin 2024-2027 var lögð fram til síðari umræðu í sveitarstjórn síðastliðinn fimmtudag og samþykkt einróma. Áætluð rekstrarniðurstaða samstæðunnar (A og B hluta) árið 2024 er jákvæð um 85,9 milljónir króna. „Nýjasta útkomuspá fyrir árið 2023 gerir ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu upp á 63 milljónir króna á árinu 2023 þannig að áfram er haldið á sömu braut með sjálfbærni reksturs sveitarfélagsins að leiðarljósi,“ segir í tilkynningu frá sveitarstjóra.

Gert ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu Dalabyggðar - Skessuhorn