
Séra Friðrik á skrifstofu sinni. Myndin er úr bókinni Séra Friðrik segir frá.
Íhuga að svipta séra Friðrik heiðursborgaranafnbót
Á lokuðum fundi bæjarstjórnar Akraness þriðjudaginn 28. nóvember síðastliðinn var tekin umræða um hvort rétt væri að svipta tiltekinn heiðursborgara Akraness þeirri nafnbót. Í fundargerð segir að í tilefni af nýútkominni bók Guðmundar Magnússonar um ævi séra Friðriks Friðrikssonar, stofnanda KFUM & K, hafi komið fram vitnisburður manns um að séra Friðrik hafi leitað á hann og auk þess hafi fréttaflutningur um fleiri tilvik komið fram.