
Framlengja samning um tjaldsvæði
Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar 30. nóvember síðastliðinn kom fram beiðni um framlengingu samnings um rekstur á tjaldsvæðinu í Kalmansvík. Skipulags- og umhverfisráð hafði lagt til við bæjarráð að framlengja samning um rekstur tjaldsvæðisins við Landamerki ehf. til 30. apríl 2025.