Kvika heldur áfram að safnast undir Svartsengi

Veðurstofan gaf í gær út nýtt hættumatskort vegna umbrotanna á Reykjanesi. Þar segir að umbrotahrinunni, sem hófst með landrisi við Svartsengi í október, sé ekki lokið. „Land heldur áfram að rísa á sama hraða og síðustu daga. Á meðan að kvika heldur áfram að safnast fyrir við Svartsengi eru líkur á öðru kvikuhlaupi sem gæti endað með eldgosi.“

Kvika heldur áfram að safnast undir Svartsengi - Skessuhorn