
Arnór og Sigrún Ósk stóðu sig vel í vetur í Kviss. Ljósm. Skjámynd af Stöð 2.
ÍR vann ÍA í úrslitum í Kviss
Úrslitaþátturinn í spurningaþættinum Kviss var sýndur á Stöð 2 í beinni útsendingu í gærkvöldi. Þar mættust lið ÍA og ÍR fyrir framan stútfullan sal af stuðningsfólki sem voru mætt til að hvetja sín lið. Fyrir hönd ÍA kepptu fjölmiðlakonan Sigrún Ósk Kristjánsdóttir og knattspyrnumaðurinn Arnór Smárason og fyrir ÍR sjónvarpskonan Viktoría Hermannsdóttir og rapparinn Emmsjé Gauti.