
Sem dæmi um ódýran rafbíl auglýsir bílaumboðið Hekla nýjan Volkswagen e-up rafbíl á 3.990.000 krónur. Bíll af þessari gerð á að komast 260 kílómetra á hleðslunni. Samkvæmt útfærslu ráðuneytisins fæst 900 þúsund króna afsláttur af kaupum á svona smábíl eftir áramótin og kostar hann þá nettó 3.090.000 krónur. Það verður því hagstæðara að kaupa þennan bíl eftir áramót en það er nú.
Hlutfallslega hæstur styrkur verður greiddur út á ódýrustu rafbílana
Um áramótin taka beinir styrkir við af skattaívilnunum sem hvatar til orkuskipta í landssamgöngum. Á vegum umhverfisráðuneytisins hefur verið unnið að gerð styrkjakerfis; „sem hraða á orkuskiptum í bílaflotanum í tengslum við flutningshvata til kaupa á hreinorkubílum,“ eins og segir orðrétt í boðskap ráðuneytisins. Það er Orkusjóður sem annast mun þessa umsýslu. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir einnig að; „áhersla verði lögð á að kerfið verði einfalt, fyrirsjáanlegt, gagnsætt og tryggi réttlát umskipti.“ Frá 1. janúar nk. verða teknir upp beinir styrkir í stað skattaívilnana og eiga styrkirnir fyrst og fremst að renna beint þangað sem þeir stuðla að sem mestum samdrætti í losun gróðuhúsalofttegunda.