
Horft yfir Ólafsvík og fjær er Rif og Hellissandur. Ljósm. úr safni/ af
Hagnaður af rekstri Snæfellsbæjar og engar nýjar lántökur
Fjárhagsáætlun A og B hluta stofnana Snæfellsbæjar fyrir næsta ár var samþykkt samhljóða á bæjarstjórnarfundi síðastliðinn fimmtudag. Fram kemur í bókun bæjarstjórnar frá fundinum að verðbólga þessa árs hafi farið töluvert fram úr spám Hagstofunnar og telur bæjarstjórn því þörf á að mæta þeim kostnaði með gjaldskrárhækkunum. Verðbólgan hefur verið í kringum 9% á árinu og munu gjaldskrár Snæfellsbæjar hækka um 7-10% á árinu 2024. Útsvarsprósenta verður óbreytt, en þó með fyrirvara um breytingar á lögum frá Alþingi um útsvarsprósentur sveitarfélaga vegna málefna fatlaðs fólks.