
Ráðgjöf fyrir aðstandendur og fólk með heilabilun
Upplýsinga- og ráðgjafaþjónusta fyrir fólk með heilabilun og aðstandendur þess hefur verið opnuð hjá Alzheimersamtökunum. Þjónustan er liður í aðgerðaáætlun stjórnvalda í málefnum eldra fólks: Gott að eldast. Markmið aðgerðarinnar er að auðvelda aðgengi að upplýsingum og ráðgjöf um hvað eina sem varðar heilabilun, svo sem varðandi þjónustu og sérhæfðari ráðgjöf.