Ýmislegt handverk var til sýnis og sölu í Norska húsinu. Ljósmyndir: sá

Jólamarkaður var haldinn í Norska húsinu

Í Stykkishólmi var jólalegt um að litast um helgina en jólamarkaður fór fram í Norska húsinu þar sem ýmsir aðilar seldu handverk og kræsingar. Markaðurinn er haldinn árlega í tvígang fyrir jól en gestir og gangandi gátu litið við og keypt eitthvað fallegt ásamt því að skoða jólasýningu Norska hússins. Jólasýningin í ár ber heitið Er líða fer að jólum og fjallar um jólasiði á Íslandi í gegnum tíðina en sérstök áhersla er í ár lögð á jólatré.

Jólamarkaður var haldinn í Norska húsinu - Skessuhorn