Hópurinn sem mætti á Jaðarsbakka. Ljósm. vaks

Körfuboltakempur hittust á ný eftir tæpa hálfa öld

Þann 2. mars árið 1975 fór fram merkilegur körfuboltaleikur þegar ÍA tók á móti KR í bikarkeppninni. Þessi leikur var fyrsti opinberi keppnisleikurinn á milli þessara félaga í körfubolta. Liðin voru ekki alveg á sama stað getulega þegar þau mættust sem sýndi sig í 100 stiga sigri KR, 144-44 sem var met í stigamun á sínum tíma. Margar flottar kempur og miklir heiðursmenn léku þennan leik hjá hvoru liði fyrir sig. ÍA og KR mættust síðasta föstudag í 1. deildinni í körfunni og í tilefni af því að tæp 50 ár voru síðan þessi bikarleikur fór fram voru leikmenn liðanna heiðursgestir á leiknum.

Körfuboltakempur hittust á ný eftir tæpa hálfa öld - Skessuhorn