
Föstudaginn 1. desember lagði piparkökuilm um ganga grunnskólans í Grundarfirði. Ástæðan var piparkökubakstur Foreldrafélags Grunnskóla Grundarfjarðar sem er liður í fjáröflun félagsins. Ófáar plötur af gómsætum piparkökum voru bornar fram sem krakkarnir skreyttu í öllum regnbogans litum. Einhverjar fóru ofan í box til geymslu en ófáar rötuðu beint upp í munna föndrara. Það má.Lesa meira








