Fréttir

true

Blóðsykurinn reyndist í þokkalegu lagi hjá Skagamönnum

Síðastliðinn laugardag var boðið upp á fría blóðsykursmælingu á Akranesi. Sem fyrr voru það Lionsklúbbur Akraness og Lionsklúbburinn Eðnur sem buðu upp á mælinguna sem fram fór í verslanamiðstöðinni við Smiðjuvelli. Að sögn lionsmannsins Ólafs Magnússonar var ágætlega mætt að þessu sinni, en vel á annað hundrað manns létu mæla blóðsykurinn. Ólafur sagði að óvenjulega…Lesa meira

true

Héldu minningarathöfn á Borg

Gærdagurinn, sunnudagurinn 19. nóvember, var helgaður minningu þeirra sem látið hafa lífið í umferðarslysum.  Minningarathafnir voru haldnar víða um land af þessu tilefni. Björgunarsveitin Brák í Borgarnesi hafði frumkvæði að því að viðbragðsaðilar í Borgarfirði komu saman. Auk Brákar voru það björgunarsveitirnar Heiðar og Ok, Slökkvilið Borgarbyggðar, Sjúkarflutningar HVE og Lögreglan á Vesturlandi. Farið var…Lesa meira

true

Kvenfélagið Gleym mér ei gefur bjöllukerfi

Kvenfélagið Gleym mér ei í Grundarfirði færði Dvalarheimilinu Fellaskjól veglega gjöf á dögunum; nýtt bjöllukerfi sem er mikil bylting frá fyrra kerfi. Nú fá starfsmenn boð í sérstök snjalltæki sem þeir ganga með og geta brugðist við hvar sem þeir eru í húsinu. Vistmenn fá allir hnapp sem þeir ganga með og hægt er að…Lesa meira

true

Heitavatnslaust í hluta Borgarness á morgun

Vegna viðhaldsvinnu verður heitavatnslaust í neðri hluta Borgarness á morgun, þriðjudaginn 21. nóvember frá klukkan 09:00 til 17:00 (sjá nánar á meðfylgjandi mynd). „Fólki er bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem…Lesa meira

true

Svið og kveðskapur í aðalhlutverki

Í gærkveldi var boðið upp á þjóðlega skemmtun í félagsheimilinu Brautartungu í Lundarreykjadal í samstarfi Ungmennafélagsins Dagrenningar og Kvæðamannafélagsins Snorra í Reykholti. Ungmennafélagar báru á borð svið; ný, köld, söltuð og reykt, með tilheyrandi meðlæti og pönnukökum, kruðeríi og kaffi í desert. Skemmtiatriði voru svo í boði Snorra. Dagskráin hófst með því að Ragnar Ingi…Lesa meira

true

Pink Iceland verðlaunað af SAF í annað sinn

Samtök ferðaþjónustunnar afhentu Nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar á 25 ára afmælisráðstefnu samtakanna í síðustu viku. Það var samhljóma niðurstaða dómnefndar að Pink Iceland skyldi hljóta Nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar árið 2023. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, afhenti verðlaunin með viðhöfn fyrir troðfullum sal á Hilton Reykjavík Nordica, en rúmlega 400 manns tóku þátt í ráðstefnunni. SAF afhenda Nýsköpunarverðlaun fyrir…Lesa meira

true

Nýr Baldur byrjar siglingar

Tekið var formlega á móti nýrri Breiðafjarðarferju sem ber heitið Baldur við hátíðlega athöfn í Stykkishólmshöfn síðastliðinn föstudag. Fjöldi fólks lagði leið sína niður á höfn til að skoða ferjuna sem einnig var opin fyrir gesti og gangandi. Boðið var upp á kaffi og meðlæti um borð og gafst gestum tækifæri til að skoða farþegarými…Lesa meira

true

Blóðsykur tekinn hjá Grundfirðingum

Lionsklúbbur Grundarfjarðar stóð fyrir árlegri blóðsykurmælingu í Kjörbúðinni í Grundarfirði fimmtudaginn 16. nóvember síðastliðinn.  Þá gafst Grundfirðingum tækifæri á að láta athuga blóðsykur hjá sér en ráðlagt er að fylgjast vel með honum þar sem að frávik geta verið vísbending um heilsufarsvandamál. Það voru sjúkraflutningamenn í Grundarfirði sem framkvæmdu mælinguna og voru ófáir sem komu…Lesa meira

true

Stærsti skjálftinn í nótt var nærri Kleifarvatni

Klukkan 05:35 í morgun mældist jarðskjálfti um þrjá kílómetra vestur af Kleifarvatni. Var hann 3,7 að stærð og fannst víða á höfuðborgarsvæðinu. „Áfram mælist smáskjálftavirkni yfir kvikuganginum, norð-norðaustur af Grindavík. Um 370 jarðskjálftar mældust þar síðustu nótt. Í gær mældust rétt um 1800 skjálftar yfir kvikuganginum. Engin teljandi merki eru um breytta virkni yfir ganginum…Lesa meira

true

Tilkynning frá Lionsklúbbi Akraness

Tekjur af útleigu ljósakrossa renna til tækjakaupa á HVE Eins og áður verður Lionsklúbbur Akraness með útleigu á ljósakrossum í kirkjugarðinum nú í byrjun aðventunnar. Við verðum í garðinum á eftirtöldum dögum: Laugardaginn 25. nóvember kl. 11.00 – 15.30, sunnudaginn 26. nóvember kl. 13.00 – 15.30 og laugardaginn 2. desember kl. 13.00 – 15.30. Við…Lesa meira