
Sérfræðingar Veðurstofunnar sendu í hádeginu frá sér uppfærða stöðu vegna skjálftavirkni og jarðhræringa á Reykjanesi. „Skjálftavirkni tengd kvikuganginum sem myndaðist fyrir um viku síðan helst nokkuð stöðug frá því í gær. Alls hafa um 2.000 skjálftar mælst síðusta sólarhringinn og er mesta virknin á svæðinu norður af Hagafelli að Sundhnúksgígum. Mest er um smáskjálfta undir…Lesa meira








