Fréttir

true

Sveitarfélög á Vesturlandi senda skilaboð til Grindvíkinga

Öll stærri sveitarfélög á Vesturlandi hafa á vefsíðum sínum sent Grindvíkingum kveðjur og bjóða jafnframt fram aðstoð sína. Meðal annars standa dyr skólanna opnar fyrir börn úr Grindavík kjósi fólk að dvelja á svæðinu meðan ástandið varir. Hér að neðan má sjá hluta þeirra skilaboða sem sveitarfélög á Vesturlandi hafa sent: „Við sendum öllum Grindvíkingum…Lesa meira

true

Grindavík rýmd í kjölfar vaxandi jarðskjálfta og hættu á eldgosi

„Mjög skýr merki koma nú fram á mælum Veðurstofu um myndun kvikugangs til yfirborðs.“ Þannig hljóðaði tilkynning frá Almannavörnum síðastliðið föstudagskvöld. Þar með hófst atburðarás sem sér ekki fyrir endan á. Lýst var yfir hættuástandi og íbúum í Grindavík var gert að yfirgefa bæinn sinn á tveimur til þremur klukkutímum. Flestir leituðu skjóls hjá ættingjum…Lesa meira

true

Opið hús fyrir hryllingsverur

Mánudaginn 30. október síðastliðinn var opið hús í Brekkubæjarskóla á Akranesi fyrir nemendur á unglingastigi í 8. til. 10. bekk. Nemendaráð breytti hluta skólans í svakalegt draugahús sem þau höfðu undirbúið í nokkurn tíma í tilefni Hrekkjavöku. Alls konar óhugnanlegar verur voru á vappi, gengu um stofur og ganga til þess eins að reyna að…Lesa meira

true

Skammhlaup í FVA – Myndasyrpa af sal

Hið árlega skammhlaup fór fram í gær í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi og birti Skessuhorn í gær myndasyrpu frá keppni í óhefðbundnum íþróttagreinum á Jaðarsbökkum þar sem vel var tekist á. Eftir það var haldið á sal FVA þar sem liðin sex sem voru að taka þátt kepptu meðal annars í spurningaleiknum „Kahoot!,“ planki, að…Lesa meira

true

Lögregla áréttar að skotvopnaleyfi þurfa að vera í lagi

„Við viljum biðja eigendur skotvopna um að kanna hvort þeir eru ekki örugglega með réttindin sín í gildi,“ segir í tilkynningu frá Lögreglunni á Vesturlandi. „Nokkuð er um að réttindi hafa runnið út og gleymst eða látið fyrirfarast að endurnýja. Rétt er að vekja athygli á því að hyggist eigendur skotvopna ekki endurnýja réttindin er…Lesa meira

true

Skjálfti yfir fjögur stig fannst vel á Akranesi

Nokkuð öflugur jarðskjálfti varð á Reykjanesi klukkan 12:45 í dag. Var hann af stærðinni 4,1 og átti upptök sín nálægt Sýlingafelli, norðvestan við Grindavík, og er talinn hafa verið á fimm kílómetra dýpi. Skjálftinn fannst vel á öllu suðvesturhorni landsins. Á ritsjórnarskrifstofu Skessuhorns á Akranesi fannst hann sem stöðugar bylgjuhreyfingar sem vörðu í nokkrar sekúndur.…Lesa meira

true

Ný heimasíða Borgarbyggðar komin í loftið

Í gær var ný heimasíða sveitarfélagsins Borgarbyggðar sett í loftið. Það var afmælisbarn dagsins og starfsmaður hjá Borgarbyggð, Guðrún Ásta Völundardóttir, ásamt Stefáni Brodda Guðjónssyni sveitarstjóra, sem opnuðu síðuna með formlegum hætti. Vefhönnun var í höndum fyrirtækisins Vettvangur og uppsetning og forritun er unnin af fyrirtækinu Netvöktun. Umsjón með verkefninu hafði María Neves sem er…Lesa meira

true

Áætlað er að 263 skemmtiferðaskip komi til Faxaflóahafna á næsta ári

Skemmtiferðaskipavertíð Faxaflóahafna á þessu ári hófst 28. mars með komu skipsins Ambience, sem lagðist að Skarfabakka og farþegar nutu þar stórbættrar aðstöðu. Vertíðinni lauk 14. október þegar Pacific World sigldi úr höfn. Í heildina komu 99 skemmtiferðaskip til Reykjavíkur og Akraness á þessu ári í alls 261 skipakomu. Heildar farþegatölur skemmtiferðaskipanna á árinu var 306.311…Lesa meira

true

Of hátt leiguverð, biðlistar og óboðlegt húsnæði meðal vandamála leigjenda

Velferðarvaktin stóð fyrir fjölmennu málþingi í gær sem bar yfirskriftina „Tjaldað til einnar nætur?“ Þar var fjallað um stöðu tekjuminni hópa á húsnæðismarkaði. „Erfiðleikar á húsnæðismarkaði og einkum aðstæður þeirra sem búa við það óöryggi sem fylgir því að eiga í húsnæðisvanda, hafa lengi verið til umræðu í samfélaginu. Markmiðið með málþinginu var að fá…Lesa meira

true

Kynnti nýjustu bókina sína

Rithöfundurinn Eva Björg Ægisdóttir frá Akranesi hélt síðdegis í gær bókakynningu í heimabæ sínum. Í Pennanum Eymundsson las hún kafla úr nýjustu bók sinni; Heim fyrir myrkur. Fjölmenni var mætt til að hlusta og kaupa bókina á sérstöku kynningarverði. Reyndar var þetta annar dagurinn í röð sem tölvukerfi Pennans Eymundsson lá niðri á landsvísu, en…Lesa meira