Seaborun Venture lá utan við Akraneshöfn laugardaginn 1. júlí og setti skemmtilegan svip á bæjarmyndina meðan Írskir dagar stóðu sem hæst. Ljósm. úr safni/ Tomasz Wisła.

Áætlað er að 263 skemmtiferðaskip komi til Faxaflóahafna á næsta ári

Skemmtiferðaskipavertíð Faxaflóahafna á þessu ári hófst 28. mars með komu skipsins Ambience, sem lagðist að Skarfabakka og farþegar nutu þar stórbættrar aðstöðu. Vertíðinni lauk 14. október þegar Pacific World sigldi úr höfn. Í heildina komu 99 skemmtiferðaskip til Reykjavíkur og Akraness á þessu ári í alls 261 skipakomu. Heildar farþegatölur skemmtiferðaskipanna á árinu var 306.311 en af þeim voru 148.615 svokallaðir skiptifarþegar, það þeir farþegar sem hefja eða enda ferð sína í höfn og fljúga síðan til eða frá landinu í gegnum Keflavíkurflugvöll.

Áætlað er að 263 skemmtiferðaskip komi til Faxaflóahafna á næsta ári - Skessuhorn