Nemendur FVA fylgdust spenntir með. Texti og myndir: vaks

Skammhlaup í FVA – Myndasyrpa af sal

Hið árlega skammhlaup fór fram í gær í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi og birti Skessuhorn í gær myndasyrpu frá keppni í óhefðbundnum íþróttagreinum á Jaðarsbökkum þar sem vel var tekist á. Eftir það var haldið á sal FVA þar sem liðin sex sem voru að taka þátt kepptu meðal annars í spurningaleiknum „Kahoot!,“ planki, að verpa eggjum, „silly walk“ og hópsöng. Þegar stigin höfðu verið talin kom í ljós að gula liðið var sigurvegari og gátu þau fagnað sigrinum á Skammhlaupsballinu sem var haldið í sama sal seinna um kvöldið. Þar komu fram prettyboitjokko og dj Marinó og skemmtu nemendum skólans fram á miðnætti.

Skammhlaup í FVA – Myndasyrpa af sal - Skessuhorn