
Hér er horft til svæðisins norðan við Svartsengi. Ljósm. mm
Skjálfti yfir fjögur stig fannst vel á Akranesi
Nokkuð öflugur jarðskjálfti varð á Reykjanesi klukkan 12:45 í dag. Var hann af stærðinni 4,1 og átti upptök sín nálægt Sýlingafelli, norðvestan við Grindavík, og er talinn hafa verið á fimm kílómetra dýpi. Skjálftinn fannst vel á öllu suðvesturhorni landsins. Á ritsjórnarskrifstofu Skessuhorns á Akranesi fannst hann sem stöðugar bylgjuhreyfingar sem vörðu í nokkrar sekúndur.