
Sveitarfélög á Vesturlandi senda skilaboð til Grindvíkinga
Öll stærri sveitarfélög á Vesturlandi hafa á vefsíðum sínum sent Grindvíkingum kveðjur og bjóða jafnframt fram aðstoð sína. Meðal annars standa dyr skólanna opnar fyrir börn úr Grindavík kjósi fólk að dvelja á svæðinu meðan ástandið varir. Hér að neðan má sjá hluta þeirra skilaboða sem sveitarfélög á Vesturlandi hafa sent:
„Við sendum öllum Grindvíkingum okkar bestu stuðningskveðjur með von um að yfirstandandi jarðhræringar valdi sem minnstum skaða á eignum, atvinnulífi og innviðum í Grindavík. Við erum reiðubúin til að veita alla þá þjónustu og aðstoð sem við getum og bjóðum öll sem á þurfa að halda velkomna í bæinn okkar,“ segir m.a. í yfirlýsingu frá Haraldi Benediktssyni bæjarstjóra á Akranesi.
„Borgarbyggð sendir íbúum í Grindavík sem hafa nú þurft að yfirgefa heimili sín, hlýjar kveðjur og samhug á þessum erfiðum tímum. Hugur allra landsmanna er hjá Grindvíkingum og það er einlæga von sveitarfélagsins að þessar náttúruhamfarir fái farsælan endi og að íbúar geti snúið aftur til síns heima hratt og örugglega,“ segir í yfirlýsingu á vef Borgarbyggðar. Þar geta íbúar skráð sig á lista til móttöku á fólki frá Grindavík.
„Það er mikilvægt að taka höndum saman í aðstæðum sem þessum og býður Hvalfjarðarsveit fram aðstoð við Grindvíkinga, eftir því sem hægt er að verða að liði í þeim verkefnum sem framundan eru,“ segir m.a. í yfirlýsingu frá Hvalfjarðarsveit.
Þá býður bæjarstjórn Grundarfjarðar, í samvinnu við stjórnendur stofnana bæjarins, fram þjónustu og aðstoð við Grindvíkinga; „eftir því sem við getum orðið að liði í þeim stóru óvissuverkefnum sem framundan eru. Börn og ungmenni, sem koma til tímabundinnar dvalar í Grundarfirði, bjóðum við velkomin í grunnskóla og íþróttir, en Ungmennafélag Grundarfjarðar hefur þegar haft samband og beðið okkur um að koma sínu boði á framfæri.“
„Dalabyggð sendir íbúum Grindavíkur hlýjar kveðjur vegna þeirra erfiðu aðstæðna sem nú eru uppi í tengslum við jarðhræringarnar á Reykjanesskaga. Hugur okkar, líkt og landsmanna allra, er hjá ykkur. Færum jafnframt viðbragðsaðilum kveðjur og þakkir fyrir sín störf og óskum þeim góðs gengis í verkefnunum framundan,“ segir í dalir.is
„Sveitarfélagið Stykkishólmur og íbúar þess senda hlýjar kveðjur til Grindvíkinga, sem hafa nú þurft að yfirgefa heimili sín í öryggisskyni, með von um að þær náttúruhamfarir sem nú standa yfir fái skjótan og farsælan endi. Hugur okkar er með ykkur.“
„Hugur okkar allra er nú hjá Grindvíkingum sem þurft hafa að yfirgefa heimili sín og lifa nú í óvissunni. Snæfellsbær sendir hlýjar kveðjur til Grindvíkinga og vonar innilega að þessar náttúruhamfarir fái skjótan og farsælan endi.“