Grindavík rýmd í kjölfar vaxandi jarðskjálfta og hættu á eldgosi

„Mjög skýr merki koma nú fram á mælum Veðurstofu um myndun kvikugangs til yfirborðs.“ Þannig hljóðaði tilkynning frá Almannavörnum síðastliðið föstudagskvöld. Þar með hófst atburðarás sem sér ekki fyrir endan á. Lýst var yfir hættuástandi og íbúum í Grindavík var gert að yfirgefa bæinn sinn á tveimur til þremur klukkutímum. Flestir leituðu skjóls hjá ættingjum og vinum, en auk þess stóðu fólki opnar fjöldahjálparstöðvar á þremur stöðum; á Selfossi, Reykjanesbæ og Kópavogi. Rýming gekk fumlaust og vel fyrir sig og á innan við tveimur klukkustundum var Grindavíkurbær orðinn mannlaus, utan björgunar- og viðbragðsaðila og lykilfólks hjá Grindavíkurbæ. Rýming var ákveðin í kjölfar tugþúsunda jarðskjálfta sem riðið hafa yfir frá því í lok október, en sífellt færðust í aukana. Ljóst var að hættan á eldgosi var orðin mikil.

Auknar líkur eru nú á að eldgos verði nærri Grindavík og jafnvel að hluta undir byggðinni. Þá er ekki útilokað að sprengigos verði með tilheyrandi öskufalli. Kvika nálgast enn yfirborðið og talið að hún sé á 800 metra dýpi. Mælingar sýna 15 kílómetra langa sprungu sem nær frá norðaustri til suðvesturs og m.a. undir vesturhluta byggðar í Grindavík.

Grindavík rýmd í kjölfar vaxandi jarðskjálfta og hættu á eldgosi - Skessuhorn