
Eva Björg á kynningunni í Eymundson. Ljósm. mm
Kynnti nýjustu bókina sína
Rithöfundurinn Eva Björg Ægisdóttir frá Akranesi hélt síðdegis í gær bókakynningu í heimabæ sínum. Í Pennanum Eymundsson las hún kafla úr nýjustu bók sinni; Heim fyrir myrkur. Fjölmenni var mætt til að hlusta og kaupa bókina á sérstöku kynningarverði. Reyndar var þetta annar dagurinn í röð sem tölvukerfi Pennans Eymundsson lá niðri á landsvísu, en í fyrradag var gerð árás á netkerfi verslanakeðjunnar og lá þar af leiðandi allt sölukerfi niðri. Komið var upp gömlum söluposa til að Eva Björg gæti selt áhugasömum bók sína.