Fréttir

true

Umhverfisverðlaun Akraneskaupstaðar afhent

Í gærkvöldi afhenti skipulags- og umhverfisráð Akraneskaupstaðar umhverfisverðlaun kaupstaðarins fyrir árið 2023 og fór athöfnin fram í Tónbergi. Markmiðið með þessum verðlaunum er að efla umhverfisvitund og skapa umhyggju fyrir bænum og umhverfi hans. Einnig að vekja þannig athygli á atriðum sem skipta uppbyggingu og framtíð bæjarins máli. Veitt voru verðlaun í fimm flokkum og…Lesa meira

true

Söfnuðu fyrir RKÍ með hljóðfæraleik við verslanir

Börnin á myndinni komu fyrr í vikunni færandi hendi með peningagjöf á skrifstofu Akranesdeildar Rauða krossins. Þau söfnuðu frjálsum framlögum með hljóðfæraleik fyrir utan Bónus og Krónuna á Akranesi. Börnin heita f.v. Styrmir Ari Guðmannsson, Margrét Hafþórsdóttir, Írena Jökulsdóttir og Sandra Bohdan. „Rauði krossinn vill koma á framfæri kæru þakklæti. Peningarnir munu renna til hjálparstarfs…Lesa meira

true

Smalahundi komið til bjargar

Þau eru mörg og fjölbreytt verkefnin sem björgunarsveitir landsins taka sér fyrir hendur. Í gær fékk björgunarsveitin Bára á Djúpavogi aðstoðarbeiðni vegna smalahunds sem sat fastur í klettum. Björgunarfólk hélt af stað inn í Hofsdal inn af Álftafirði þar sem hvutti var í vandræðum. Eftir nokkra göngu með klifur og sigbúnað á bakinu komst björgunarfólk…Lesa meira

true

Kosið um sameiningu tveggja sveitarfélaga á sunnanverðum Vestfjörðum

Undanfarið ár hafa tvö sveitarfélög á sunnanverðum Vestfjörðum; Tálknafjarðarhreppur og Vesturbyggð, staðið í viðræðum um sameiningu. Ákveðið var að stefna á kosningu meða íbúa og hefur hún undanfarnar vikur farið fram á skrifstofum sveitarfélaganna en sameiningarkosningum lýkur svo á morgun, laugardaginn 28. október, þar sem hægt verður að mæta á kjörstaði. Talning atkvæða úr kosningunni…Lesa meira

true

Ice Docs hlaut menningarverðlaun Akraneskaupstaðar 2023

Menningar- og listahátíðin Vökudagar var sett í 21. skipti í Tónlistarskólanum á Akranesi í gær og við það tilefni voru menningarverðlaun Akraness 2023 afhent. Menningarverðlaunin 2023 hlutu aðstandendur heimildamyndarhátíðarinnar Ice Docs sem haldin hefur verið á Akranesi síðastliðin fimm ár. Fram kemur á vef Akraneskaupstaðar að markmið hátíðarinnar sé að koma því besta sem er…Lesa meira

true

Heimkaup í samstarf við Dropp um sendingar á landsbyggðina

Samningur hefur verið undirritaður milli Heimkaupa og Dropp sem mun senda vörur Heimkaupa til viðskiptavina um land allt. „Sendingaþjónusta Dropp er með 90 afhendingarstaði hringinn í kringum landið og opnar þetta því möguleika fyrir fólk um allt land að kaupa beint af Heimkaup og fá afhent samdægurs eða næsta virka dag eftir því hvar á…Lesa meira

true

Garðfuglatalning hefst á sunnudaginn

Hin árlega garðfuglakönnun Fuglaverndar hefst sunnudag 29. október nk. Tilgangur garðfuglakönnunarinnar er að fá upplýsingar um fuglategundir og fjölda fugla sem halda sig í görðum hér á landi yfir vetrarmánuðina. Jafnframt er tilgangurinn að hvetja fólk til að líta á fuglalífið í sínu nánasta umhverfi. Það skiptir ekki máli þó fólk byrji aðeins seinna að telja…Lesa meira

true

Steypustöðin ætlar að vinna hratt að rafvæðingu tækjaflotans

Á innan við ári hefur Steypustöðin fjárfest í og tekið í notkun fimm nýja og rafknúna vörubíla; þrjá steypubíla, steypudælubíl og dráttarbíl. Tveir steypubílanna bættust fyrir fáeinum vikum, en fram kemur í tilkynningu að fyrirtækið ætlar að vinna hratt að orkuskiptum í flotanum og gerir ráð fyrir að árið 2032 verði 70% tækjaflotans rafknúinn að…Lesa meira

true

Vel tekið á móti vinnufélaganum úr fríinu

Þegar Halldór Jónsson starfsmannastjóri kom að nýju til starfa sinna hjá Skaganum 3X/Baader á Akranesi, eftir hálfs mánaðar frí á ónefndri sólarströnd, mætti honum jólaskreytt skrifstofan. Vinnufélagar höfðu ákveðið að stríða honum aðeins og höfðu bókstaflega pakkað skrifstofunni inn í fagurlitaðan jólapappír. Þarna má segja að skrattinn hafi hitt ömmu sína því Dóri hefur fram…Lesa meira