Í sundi á Tálknafirði. Ljósm. úr safni

Kosið um sameiningu tveggja sveitarfélaga á sunnanverðum Vestfjörðum

Undanfarið ár hafa tvö sveitarfélög á sunnanverðum Vestfjörðum; Tálknafjarðarhreppur og Vesturbyggð, staðið í viðræðum um sameiningu. Ákveðið var að stefna á kosningu meða íbúa og hefur hún undanfarnar vikur farið fram á skrifstofum sveitarfélaganna en sameiningarkosningum lýkur svo á morgun, laugardaginn 28. október, þar sem hægt verður að mæta á kjörstaði. Talning atkvæða úr kosningunni verður svo fyrir opnum dyrum og hefst kl. 20:00 annað kvöld. Í Tálknafjarðarhreppi verður talið í íþróttahúsi Tálknafjarðar en í Vesturbyggð verður talið í félagsheimilinu á Patreksfirði.

Kosið um sameiningu tveggja sveitarfélaga á sunnanverðum Vestfjörðum - Skessuhorn