
Garðfuglatalning hefst á sunnudaginn
Hin árlega garðfuglakönnun Fuglaverndar hefst sunnudag 29. október nk. Tilgangur garðfuglakönnunarinnar er að fá upplýsingar um fuglategundir og fjölda fugla sem halda sig í görðum hér á landi yfir vetrarmánuðina. Jafnframt er tilgangurinn að hvetja fólk til að líta á fuglalífið í sínu nánasta umhverfi. Það skiptir ekki máli þó fólk byrji aðeins seinna að telja eða hætti fyrr – aðalatriðið er að vera með. Allt fuglaáhugafólk er hvatt til að kynna sér efnið og taka þátt, segir í tilkynningu frá Fuglavernd.