
Blóðbankabíllinn verður við Ráðhússplanið Stillholti 16-18 á Akranesi á morgun, þriðjudaginn 31. okt. frá kl. 10:00 – 17:00. Þangað eru allir hvattir til að mæta og gefa blóð.Lesa meira

Blóðbankabíllinn verður við Ráðhússplanið Stillholti 16-18 á Akranesi á morgun, þriðjudaginn 31. okt. frá kl. 10:00 – 17:00. Þangað eru allir hvattir til að mæta og gefa blóð.Lesa meira

Bekkurinn var þétt setinn á baráttufundi Samtaka ungra bænda sem fram fór í Salnum í Kópavogi síðastliðinn fimmtudag. Um 300 manns mættu til fundarins og þúsundir fylgdust með í streymi og beinni útsendingu. Fundarmenn samþykktu einróma og með kröftugu lófataki ályktun og áskorun til stjórnvalda um að opna augun og leggja við hlustir þegar rekstrarumhverfi…Lesa meira

Orka náttúrunnar hefur ráðið Tinnu Jóhannsdóttur í starf markaðsstýru fyrirtækisins og hefur hún þegar hafið störf. Tinna mun einnig taka sæti í framkvæmdastjórn félagsins. Tinna gegndi starfi framkvæmdastjóra Skógarbaðanna í Eyjafirði þar til fyrr á þessu ári og býr yfir mikilli reynslu á sviði markaðsmála. Áður var hún m.a. forstöðumaður markaðsmála hjá Reginn hf. og…Lesa meira

Meirihluti hreppsnefndar Skorradalshrepps samþykkti á fundi sínum 18. október síðastliðinn að óska eftir óformlegum viðræðum við Borgarbyggð um hugsanlega sameiningu sveitarfélaganna. Þrír af fimm sveitarstjórnarfulltrúum samþykktu að; „fela oddvita og varaoddvita að óska eftir samtali við sveitarstjórn Borgarbyggðar um mögulega útfærslu á sameiningarmöguleikum.“ Tveir fulltrúar í sveitarstjórn greiddu ekki atkvæði sín með tillögunni. Pétur Davíðsson…Lesa meira

Undanfarið ár hafa tvö sveitarfélög á sunnanverðum Vestfjörðum; Tálknafjarðarhreppur og Vesturbyggð, staðið í viðræðum um sameiningu. Ákveðið var að stefna á kosningu meða íbúa og hefur hún undanfarnar vikur farið fram á skrifstofum sveitarfélaganna en sameiningarkosningum lauk í gær þar sem hægt var að mæta á kjörstaði. Talið var strax og kjörstöðum hafði verið lokað…Lesa meira

Síðastliðinn fimmtudag komu 16 læknar frá Reykjavík til Snæfellsbæjar í tveggja daga æfingaferð. Aaron Palomares, sem er starfandi læknir í Ólafsvík, sagði í samtali við Skessuhorn að mest áhersla hafi verið lögð á utanspítalaþjónustu. „Flestir af þessum læknum eru vanir að vinna inni á Landspítalanum en hafa lítið farið út á land og auk þess…Lesa meira

Vesturlandsmót í boccia 2023 fór fram í íþróttahúsinu á Hvammstanga laugardaginn 21. október síðastliðinn. Að þessu sinni mættu til leiks aðeins tólf lið frá fjórum félögum; Akranesi, Borgarbyggð, Snæfellsbæ og Húnaþingi-vestra. Mosfellingar, Grundfirðingar og Stykkishólmsbúar mættu ekki að þessu sinni. Leikið var í fjórum riðlum, þrjú lið í hverjum og leikin tvöföld umferð. Keppni var…Lesa meira

Níunda þingi Starfsgreinasambands Íslands lauk í gær. Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélagi Akraness og Signý Jóhannesdóttir frá Stéttarfélagi Vesturlands voru í framboði til formanns SGS. Niðurstaða kosningar varð á þá lund að Vilhjálmur hlaut 81,1% atkvæða og Signý 18,9% atkvæða. Vilhjálmur var því endurkjörinn formaður til næstu tveggja ára. Guðbjörg Kristmundsdóttir frá VSFK var ein í…Lesa meira

Sunnudaginn 22. október síðastliðinn brá fréttaritari Skessuhorns undir sig betri fætinum og fór á kvikmyndasýningu í Frystiklefanum í Rifi. Þar var verið að sýna heimildarmyndina Heimaleikinn í leikstjórn Loga Sigursveinssonar og Smára Gunnarssonar. Fullt var út úr dyrum þennan sunnudag og komust færri að en vildu. Myndin er sýnd í bíósölum í Reykjavík og í…Lesa meira

Að lokinni setningu Vökudaga í Tónbergi á Akranesi í gær hófst svokölluð listaganga þar sem bæjarbúar gátu kíkt í heimsókn á opnar vinnustofur ýmissa listamanna víðs vegar um bæinn og á samsýningar þar sem listamenn sýndu verk sín og tóku á móti fólki. Um kvöldið voru einnig styrktartónleikar fyrir Elísabetu Stefánsdóttur sem greindist með krabbamein…Lesa meira