Viðbragðsaðilar að bera slasaða frá vettvangi bílslyss. Texti og myndir: Alfons Finnsson

Slys sviðsett í Snæfellsbæ til að þjálfa bráðalækna – myndir

Síðastliðinn fimmtudag komu 16 læknar frá Reykjavík til Snæfellsbæjar í tveggja daga æfingaferð. Aaron Palomares, sem er starfandi læknir í Ólafsvík, sagði í samtali við Skessuhorn að mest áhersla hafi verið lögð á utanspítalaþjónustu. „Flestir af þessum læknum eru vanir að vinna inni á Landspítalanum en hafa lítið farið út á land og auk þess lítið kynnst aðstæðum eins og settar voru upp á þessari æfingu.“

Slys sviðsett í Snæfellsbæ til að þjálfa bráðalækna - myndir - Skessuhorn