Horft frá Borgarnesi og áleiðis upp í Skorradal, sem er ofarlega fyrir miðri mynd. Ljósm. mm

Undirbúa formlegar viðræður um sameiningu Skorradalshrepps og Borgarbyggðar

Meirihluti hreppsnefndar Skorradalshrepps samþykkti á fundi sínum 18. október síðastliðinn að óska eftir óformlegum viðræðum við Borgarbyggð um hugsanlega sameiningu sveitarfélaganna. Þrír af fimm sveitarstjórnarfulltrúum samþykktu að; „fela oddvita og varaoddvita að óska eftir samtali við sveitarstjórn Borgarbyggðar um mögulega útfærslu á sameiningarmöguleikum.“ Tveir fulltrúar í sveitarstjórn greiddu ekki atkvæði sín með tillögunni. Pétur Davíðsson lagði til að einnig yrði óskað eftir samtali við Akraneskaupstað og Hvalfjarðasveit um sameiningarmál. Það var fellt. Þá lét Óli Rúnar Ástþórsson hreppsnefndarfulltrúi bóka í fundargerð: „Finnst ekki tímabært strax að hefja viðræður um sameiningarmál?“ Tillaga meirihlutans var samþykkt með þremur atkvæðum Jóns E Einarssonar, Kristínar Jónsdóttur og Guðnýjar Elíasdóttur. Meirihlutinn hafnaði því sömuleiðis að Guðný Elíasdóttir varaoddviti væri vanhæf til viðræðna við Borgarbyggð í ljósi þess að hún er starfsmaður á skipulagssviði sveitarfélagsins.

Undirbúa formlegar viðræður um sameiningu Skorradalshrepps og Borgarbyggðar - Skessuhorn