
Steinþór Logi Arnarsson bóndi í Stórholti og formaður stjórnar Samtaka ungra bænda í ræðustól.
Áhrifaríkur baráttufundur ungra bænda
Bekkurinn var þétt setinn á baráttufundi Samtaka ungra bænda sem fram fór í Salnum í Kópavogi síðastliðinn fimmtudag. Um 300 manns mættu til fundarins og þúsundir fylgdust með í streymi og beinni útsendingu. Fundarmenn samþykktu einróma og með kröftugu lófataki ályktun og áskorun til stjórnvalda um að opna augun og leggja við hlustir þegar rekstrarumhverfi landbúnaðar er annars vegar, hvort heldur sem er ómöguleiki líðandi stundar í skuldsettum búrekstri eða öll þau nýju tækifæri sem blasa við á heimsmarkaði vegna afdráttarlausra gæða íslenskrar matvælaframleiðslu.