
Rafknúnir bílar fyrirtækisins. Ljósm. aðsend
Steypustöðin ætlar að vinna hratt að rafvæðingu tækjaflotans
Á innan við ári hefur Steypustöðin fjárfest í og tekið í notkun fimm nýja og rafknúna vörubíla; þrjá steypubíla, steypudælubíl og dráttarbíl. Tveir steypubílanna bættust fyrir fáeinum vikum, en fram kemur í tilkynningu að fyrirtækið ætlar að vinna hratt að orkuskiptum í flotanum og gerir ráð fyrir að árið 2032 verði 70% tækjaflotans rafknúinn að hluta eða öllu leyti.