Frá afhendingu verðlaunanna. Frá vinstri: Guðríður Sigurjónsdóttir formaður menningar- og safnanefndar, Ingibjörg Halldórsdóttir, Heiðar Mar Björnsson og Haraldur Benediktsson bæjarstjóri. Ljósm. vaks

Ice Docs hlaut menningarverðlaun Akraneskaupstaðar 2023

Menningar- og listahátíðin Vökudagar var sett í 21. skipti í Tónlistarskólanum á Akranesi í gær og við það tilefni voru menningarverðlaun Akraness 2023 afhent. Menningarverðlaunin 2023 hlutu aðstandendur heimildamyndarhátíðarinnar Ice Docs sem haldin hefur verið á Akranesi síðastliðin fimm ár.

Ice Docs hlaut menningarverðlaun Akraneskaupstaðar 2023 - Skessuhorn