
Gréta María Grétarsdóttir forstjóri Heimkaupa og Hrólfur Andri Tómasson framkvæmdastjóri Dropp. Ljósm. Birgir Ísleifur
Heimkaup í samstarf við Dropp um sendingar á landsbyggðina
Samningur hefur verið undirritaður milli Heimkaupa og Dropp sem mun senda vörur Heimkaupa til viðskiptavina um land allt. „Sendingaþjónusta Dropp er með 90 afhendingarstaði hringinn í kringum landið og opnar þetta því möguleika fyrir fólk um allt land að kaupa beint af Heimkaup og fá afhent samdægurs eða næsta virka dag eftir því hvar á landinu fólk er. Hægt er að panta allar vörur í gegnum Dropp nema kælivörur en áfram verður hægt að panta slíkar vörur beint frá Heimkaup á stórhöfuðborgarsvæðnu og á afhendingastöðvar Pikkoló,“ segir í tilkynningu. Afhendingarstaðir á Vesturlandi verða þessir: á Akranesi í Olís, N1 og Sbarro. Í Borgarnesi á N1. Í Borgarfirði í Esjuskálanum Baulunni, í Grundarfirði í Kjörbúðinni og í Ólafsvík á N1.