Fréttir

true

Sjötti ósigur Snæfells í röð

Snæfell mætti liði Keflavíkur í Subway deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi og var viðureignin í Blue höllinni í Reykjanesbæ. Fyrir leik var Keflavík taplaust í efsta sæti deildarinnar með tíu stig eftir fimm leiki en Snæfell í neðsta sæti enn án sigurs og stiga. Það var þó ekki að sjá í fyrri hálfleik að…Lesa meira

true

Rætt um málefni sveitarfélaga á ráðstefnu á Akranesi

Klukkan 10 í morgun hófst á Breið á Akranesi ráðstefna sem Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi boðuðu til. Umræðuefnið er málefni sveitarfélaga. Fyrir hádegi var þemað stærð og sameiningarmál sveitarfélaga og rætt um áhrif sameiningar sveitarfélaga á þjónustu við íbúa. Eftir hádegið verður rætt um aðdráttarafl sveitarfélaga og hvernig auka megi það. Ráðstefnustjóri er Guðveig Lind…Lesa meira

true

Íslandsbanki á Akranesi að flytja um heila þrjátíu metra

Föstudaginn 3. nóvember næstkomandi stefnir Íslandsbanki á Akranesi á flutning innanbæjar. Að vísu ekki svo ýkja langt, eða um þrjátíu metra, og fer í nýinnréttað athafnarými í verslana- og þjónustukjarnanum við Dalbraut 1. Fer útibúið þar með úr 320 fermetrum í um 200 fermetra. „Það er stefna bankans að fækka fermetrum í bankahúsnæði hvarvetna í…Lesa meira

true

Afmælisráðstefna AECO fór fram í Osló

Í tilefni af 20 ára afmæli AECO samtakanna (Association of Arctic Expedition Cruise Operators) var haldinn glæsileg afmælisráðstefna í Osló í Noregi dagana 17.-18. október síðastliðinn. Margrét Björk, fagstjóri áfangastaða- og markaðssviðs SSV, flaug til Noregs og var einn af fulltrúum Íslands á ráðstefnunni. Hún kynnti áfangastaðinn Vesturland og undirritaði samstarfsyfirlýsingu um þátttöku í samráðsvettvangi…Lesa meira

true

Kammerhópurinn Kvika er nýstofnaður sönghópur

Kammerhópurinn Kvika er nafn á nýstofnuðum sönghóp í Borgarfirði. Forsprakki hópsins er Viðar Guðmundsson kórstjóri og útfararstjóri með meiru og sagði hann blaðamanni Skessuhorns betur frá málinu. ,,Við stofnuðum Kammerhópinn Kviku því okkur fannst vanta blandaðan sönghóp til að taka að sér að syngja við útfarir og önnur verkefni. Þessi hugmynd hafði verið að gerjast…Lesa meira

true

Aukin skjálftavirkni á Reykjanesi – sá stærsti í morgun fannst á Akranesi

Frá miðnætti hafa mælst hátt í 800 jarðskjálftar á Reykjanesskaganum. Sá stærsti 4,5 stig varð klukkan 08:18 í morgun og fannst m.a. á Akranesi og lýsti sér þar sem hægar bylgjuhreyfingar, fremur en högg. Upptök hans voru um kílómetra norðan við fjallið Þorbjörn í Grindavík. Þessi skjálfti er annar sem mælist yfir þremur að stærð…Lesa meira

true

Nýtt hafrannsóknaskip sjósett í desember

Nýtt hafrannsóknaskip í eigu Íslendinga verður sjósett í skipasmíðastöðinni Astilleros Armón í Vigo á Spáni 15. desember næstkomandi. Við sjósetningu mun skipið formlega hljóta nafnið Þórunn Þórðardóttir og fær það einkennisstafina HF 300. Stefnt er að afhendingu skipsins til Íslendinga í október 2024 og verður þá siglt til landsins. Skipið mun leysa af hólmi Bjarna…Lesa meira

true

Silfur hringurinn er nýr valkostur í ferðaþjónustu í Borgarfirði

Silfur hringurinn er ferðaleið sem er í þróun hjá Markaðsstofu Vesturlands. Ferðaskrifstofur víða að úr heiminum fengu nýlega kynningu á leiðinni og prófuðu ýmsa afþreyingu sem er í boði. Meðfylgjandi mynd var tekin af því tilefni þegar hópurinn var staddur í Kraumu. „Mikil ánægja var með ferðina og margir spenntir fyrir því að selja Borgarfjörðinn…Lesa meira

true

Ný brú yfir Þorskafjörð vígð á morgun

Ný brú yfir Þorskafjörð í Reykhólasveit verður vígð klukkan 14 á morgun, miðvikudag. Vegagerðin hefur boðað til vígsluathafnar en þar munu Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra, Bergþóra Þorkelsdóttir vegamálastjóri og Ingibjörg Birna Erlingsdóttir sveitarstjóri Reykhólahrepps, formlega opna nýja Þorskafjarðarbrú með því að klippa á borða. Að ávörpum loknum mun Jóhanna Ösp Einarsdóttir, varaoddviti Reykhólahrepps, og formaður…Lesa meira