
Margrét Björk hér til hægri ræðir við annan ráðstefnugest. Ljósm. aðsend
Afmælisráðstefna AECO fór fram í Osló
Í tilefni af 20 ára afmæli AECO samtakanna (Association of Arctic Expedition Cruise Operators) var haldinn glæsileg afmælisráðstefna í Osló í Noregi dagana 17.-18. október síðastliðinn. Margrét Björk, fagstjóri áfangastaða- og markaðssviðs SSV, flaug til Noregs og var einn af fulltrúum Íslands á ráðstefnunni. Hún kynnti áfangastaðinn Vesturland og undirritaði samstarfsyfirlýsingu um þátttöku í samráðsvettvangi áfangastaða á norðurslóðum.