
Sigþóra Ársælsdóttir og Magnús D Brandsson stýra starfinu á Akranesi. Ljósm. mm
Íslandsbanki á Akranesi að flytja um heila þrjátíu metra
Föstudaginn 3. nóvember næstkomandi stefnir Íslandsbanki á Akranesi á flutning innanbæjar. Að vísu ekki svo ýkja langt, eða um þrjátíu metra, og fer í nýinnréttað athafnarými í verslana- og þjónustukjarnanum við Dalbraut 1. Fer útibúið þar með úr 320 fermetrum í um 200 fermetra. „Það er stefna bankans að fækka fermetrum í bankahúsnæði hvarvetna í öllum útibúum landsins og höfuðstöðvum okkar sömuleiðis. Við göngum út frá því meginstefi að það er ekki húsnæðið sem skapar þjónustuna, heldur fólkið sem þar starfar,“ segir Magnús D. Brandsson yfirmaður viðskiptabankasviðs Íslandsbanka á Akranesi í samtali við Skessuhorn. Blaðamaður settist niður með Magnúsi og Sigþóru Ársælsdóttur sem stýrir einstaklingssviði bankans á Akranesi.