Hermann Sæmundsson ráðuneytisstjóri í innviðaráðuneytinu flutti fyrsta erindið á ráðstefnunni.  Ljósm. sþ

Rætt um málefni sveitarfélaga á ráðstefnu á Akranesi

Klukkan 10 í morgun hófst á Breið á Akranesi ráðstefna sem Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi boðuðu til. Umræðuefnið er málefni sveitarfélaga. Fyrir hádegi var þemað stærð og sameiningarmál sveitarfélaga og rætt um áhrif sameiningar sveitarfélaga á þjónustu við íbúa. Eftir hádegið verður rætt um aðdráttarafl sveitarfélaga og hvernig auka megi það. Ráðstefnustjóri er Guðveig Lind Eyglóardóttir formaður stjórnar SSV. Í Skessuhorni í næstu viku er stefnt að umfjöllun um það helsta sem fram fer á ráðstefnunni.

Rætt um málefni sveitarfélaga á ráðstefnu á Akranesi - Skessuhorn