Fréttir

true

Um eftirlit með velferð hrossa í kjölfar ábendingar

„Matvælastofnun er opinber eftirlitsaðili með dýravelferð á Íslandi. Stofnunin fer með reglubundið eftirlit með öllu dýrahaldi en tekur þar að auki við ábendingum frá almenningi um slæma meðferð á dýrum. Slíkar ábendingar berast stofnuninni daglega og eru allar teknar til skoðunar. Þær snúa yfirleitt að þeim dýrum sem blasa við almenningi, t.d. gæludýrum og hrossum.…Lesa meira

true

SSV stóð fyrir ráðstefnu um sameiningu sveitarfélaga

Rástefnan Sveitarfélög á krossgötum var í gær haldin á vegum Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi í þróunarsetrinu Breið á Akranesi. Ráðstefnustjóri var Guðveig Lind Eyglóardóttir, formaður stjórnar SSV. Umræðuefnið var málefni sveitarfélaga. Fyrir hádegi var þemað stærð og sameiningarmál sveitarfélaga og rætt um áhrif sameiningar sveitarfélaga á þjónustu við íbúa. Eftir hádegið var svo rætt um…Lesa meira

true

Yngri en 18 ára kaupi ekki lyf

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að færa inn í drög að frumvarpi um breytingu á lyfjalögum, heimild til að setja aldurstakmörk á afhendingu lyfja til einstaklinga yngri en 18 ára. Frumvarpsdrögin eru til umsagnar til 5. nóvember í samráðsgátt stjórnvalda. “Upp hafa komið tilvik sem sýna fram á nauðsyn þess að skýrar reglur gildi…Lesa meira

true

Veðurstöð komin upp norðan við Akrafjall

Hvalfjarðarsveit hefur látið setja upp veðurstöð norðan við Akrafjall, við starfsstöð Terra hjá Berjadalsá. Veðurstöðin sem er uppfærð á fimm mínútna fresti gefur upplýsingar um vindhraða, veðurfar og fleira á svæðinu. Slóð á veðurstöðina má finna á heimasíðu Hvalfjarðarsveitar, www.hvalfjardarsveit.is og umsjón með veðurstöðinni hefur Elmar Snorrason en hann er með veðurstöðvar víðs vegar í…Lesa meira

true

Heima-Skaga hátíð með 23 tónleikum í ellefu heimahúsum og Bíó-balli

Tónlistarhátíðin Heima-Skagi verður haldin í þriðja sinn laugardaginn 28. október næstkomandi og er liður í menningarhátíðinni Vökudögum á Akranesi, sem verða settir i´dag og standa til 5. nóvember. Á Heima-Skaga koma fram ellefu listamenn og hljómsveitir sem spila tvisvar sinnum hver í jafn mörgum húsum. „Það stefnir í magnað kvöld, með 23 tónleikum í heima-húsum…Lesa meira

true

Snæfell mætir Stjörnunni í VÍS bikar kvenna

Dregið var í 16 liða úrslit VÍS bikars karla og kvenna í körfuknattleik í Laugardalnum í dag. 16 liða úrslitin verða leikin dagana 9.-11. desember nk. og dregið verður í 8 liða úrslit þann 13. desember. VÍS bikarúrslitin sjálf verða leikin dagana 19.-24. mars nk., þar sem karlarnir leika undanúrslit þann 19. mars, konurnar 20.…Lesa meira

true

Þorskafjarðarbrú vígð og tekin í notkun

Ný brú yfir Þorskafjörð í Reykhólasveit var vígð í dag. Þau Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra, Bergþóra Þorkelsdóttir vegamálastjóri og Ingibjörg Birna Erlingsdóttir sveitarstjóri Reykhólahrepps, klipptu á borða og opnuðu hana með formlegum hætti. Að ávörpum loknum fór fjölskyldan í Gufudal ríðandi yfir brúna; „en líklega eru fáir fegnari framkvæmdinni við Vestfjarðveg um Gufudalssveit en barnafólk…Lesa meira

true

Gamlir sveitungar hittust

Það urðu fagnaðarfundir hjá þeim frænkum og fyrrum sveitungum; Ástríði Þorsteinsdóttur frá Húsafelli og Steinunni Kolbeinsdóttur frá Stóra-Ási, þegar þær hittust í gær á kvennafrídeginum. Þær eru fæddar á sitthvoru árinu; 1927 og 1928. Ásta býr nú á Brákarhlíð í Borgarnesi eftir að hafa verið búsett í Reykjavík í áratugi og Steinunn býr á Akranesi…Lesa meira

true

Takmarka útlitsbreytingar án læknisfræðilegs tilgangs

Birt hafa verið til umsagnar í Samráðsgátt stjórnvalda drög að reglugerð sem takmarka heimildir til að veita tilteknar meðferðir sem gerðar eru til að breyta útliti fólks í fegrunarskyni og án læknisfræðilegs tilgangs. Með áformuðum breytingum verður áskilið að einungis tilteknum löggiltum heilbrigðisstéttum og eftir atvikum sérfræðingum innan þeirra, verði heimilt að veita þær meðferðir…Lesa meira

true

Óvissustigi lýst yfir á Reykjanesi

Í nótt hófst jarðskjálftahrina norðan við Grindavík og hafa yfir þúsund jarðskjálftar mælst það sem af er degi. Stærsti skjálftinn mældist kl. 8:18 í morgun og var 4,5 að stærð og sá næststærsti varð kl. 5:35 og mældist 3,9. Veðurstofunni hafa borist tilkynningar um að þessir skjálftar hafa fundist víða á Reykjanesskaga og höfuðborgarsvæðinu, en…Lesa meira