
Klippt á borðann. Ljósmyndir: SLA
Þorskafjarðarbrú vígð og tekin í notkun
Ný brú yfir Þorskafjörð í Reykhólasveit var vígð í dag. Þau Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra, Bergþóra Þorkelsdóttir vegamálastjóri og Ingibjörg Birna Erlingsdóttir sveitarstjóri Reykhólahrepps, klipptu á borða og opnuðu hana með formlegum hætti.