Hluti af hrossahópnum á bænum Laugabóli í Arnarfirði. Ljósm. Steinunn Árnadóttir.

Um eftirlit með velferð hrossa í kjölfar ábendingar

„Matvælastofnun er opinber eftirlitsaðili með dýravelferð á Íslandi. Stofnunin fer með reglubundið eftirlit með öllu dýrahaldi en tekur þar að auki við ábendingum frá almenningi um slæma meðferð á dýrum. Slíkar ábendingar berast stofnuninni daglega og eru allar teknar til skoðunar. Þær snúa yfirleitt að þeim dýrum sem blasa við almenningi, t.d. gæludýrum og hrossum. Stofnunin er þakklát fyrir þessar ábendingar og þess eru mörg dæmi að þær hafi leitt til hraðari úrbóta á velferð viðkomandi dýra en ella hefði orðið,“ segir í fréttatilkynningu frá MAST sl. miðvikudag. Þá segir að rétt sé að hafa í huga að Matvælastofnun er bundin af ákvæðum stjórnsýslulaga um rannsóknarskyldu, jafnræði og meðalhóf við meðferð mála. „Hún er einnig bundin af ákvæðum upplýsingalaga um að hún megi ekki veita upplýsingar um einkamálefni fólks, þ.á.m. umráðamanna dýra. Loks er hún bundin af ákvæðum persónuverndarlaga sem banna miðlun á upplýsingum um refsiverða háttsemi. Upplýsingar sem stofnunin getur veitt á opinberum vettvangi takmarkast því af ofangreindu.“